Debetkort
Það tekur aðeins nokkrar mínútur að sækja Arion appið og þú færð strax aðgang að debetkortareikningi og netbankanum. Debetkortið færðu svo sent heim til þín.

Það tekur aðeins nokkrar mínútur að sækja Arion appið og þú færð strax aðgang að debetkortareikningi og netbankanum. Debetkortið færðu svo sent heim til þín.

Þú getur notað debetkort Arion banka um allan heim. Auk þess getur þú verslað á netinu og greitt snertilaust.
Þegar þú stofnar debetkortareikning býðst þér að stofna reikninginn án korts eða með korti.
Almenn gjöld | |
Árgjald | 950 kr. |
Færslugjald | 19 kr. |
Viðskiptavinir okkar sem eru 23 ára og yngri greiða hvorki árgjald né færslugjöld af debetkortum. Aðrir viðskiptavinir geta notið góðs af því að vera í Arion fríðindum þar sem að lágmarki 100 færslur á ári eru fríar, allt eftir því á hvaða fríðindastigi þú ert.

Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.
Nú getur þú geymt kvittanirnar á öruggan hátt og hengt viðhengi og/eða skýringu við allar kreditkortafærslurnar þínar í appinu.
Þegar þú verslar á netinu og þörf er á staðfestingu greiðslu færðu tilkynningu frá Arion appinu sem leiðir þig á staðfestingarskjá greiðslunnar.
Að ýmsu þarf að huga fyrir fríið. Hér eru nokkur góð ráð til þeirra sem eru á ferð og flugi.
Nokkur ráð sem gott er að hafa í huga þegar verslað er á netinu.
Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Við svörum líka utan almenns opnunartíma.
Korthafar Arion eru með ferðatryggingar hjá Verði og eru þær innifaldar í árgjaldi kreditkortsins. Tryggingarnar geta verið mismunandi eftir því hvaða kort þú ert með og hvetjum við þig til að kynna þér þær vel.
SOS International sinnir neyðarþjónustu við korthafa allan sólarhringinn. Það sem fellur hér undir er almenn læknishjálp, sjúkraflutningar, tímabundin fyrirgreiðsla vegna greiðslu sjúkrakostnaðar og ráðgjöf.
Opnaðu Arion appið, ýttu á kortið þitt og „Add to Apple Wallet."
Fyrir handvirka skráningu:
Opnaðu Wallet og veldu „+“ táknið efst í hægra horninu og fylgdu leiðbeiningunum.
Opnaðu Arion appið, ýttu á kortið þitt og „Add to Google Wallet."
Fyrir handvirka skráningu:
Opnaðu Google Wallet og veldu „Add to Wallet“. Sláðu inn staðfestingarkóða sem þú færð sendan með SMS.
Opnaðu Apple Watch appið í símanum, veldu „Wallet & Apple Pay“ og síðan „Add Credit or Debit Card“.