Netbanki
Velkomin í viðskipti
Lán
ÍbúðalánBílalánSkammtímalánEndurfjármögnunFasteignalífeyrislánGreiðslumat
Sparnaður
SparnaðarreikningarGjaldeyrisreikningarViðbótarlífeyrissparnaðurSkyldulífeyrissparnaðurEinkabankaþjónustaAllt um sjóðiHlutabréf
Kort og greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortErlend viðskiptiEndurkröfur
Fríðindi
Arion fríðindiFríðindareikningurArion PremíaEinkaklúbburinn
Tryggingar
Fjölskyldan og fasteigninLíf og heilsaFerðalög og áhugamálÖkutæki
Fjölskyldan
KrakkarnirUnglingarnirUnga fólkiðHeimilið50 ára og eldri
Einfaldaðu lífið
Endurfjármagnaðu láninRáð í greiðsluerfiðleikumFjármál og tryggingar á einum staðSparnaður í áskrift
Á tímamótum
Fyrsta starfiðAð eignast barnAð skipta um starfAð fara á eftirlaunUmsýsla dánarbús
Fræðsla og ráðgjöf
Konur fjárfestumNetsvikGreinarFjármálaráðgjöf
Velkomin í viðskipti
Fjármögnun
Bíla- og tækjalánBankaábyrgðir og innheimturSjálfbær lánFjárfestingalánRekstrarlán
Ávöxtun
Innlánsreikningar fyrirtækjaGjaldeyrisreikningarEignastýringSjóðirHlutabréf
Greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortLaunagreiðendurErlend viðskipti
Lausnir
Arion appiðNetbanki ArionInnheimtuþjónustaFélagaþjónustaB2B
Tryggingar
Framleiðsla og iðnaðurSjávarútvegurLandbúnaðurVerslun og þjónustaFerðaþjónustaHeilbrigðis- og sérfræðiþjónusta
Rekstrarform
Lítil og meðalstór fyrirtækiStærri fyrirtækiEinyrkjarHúsfélög
Einfaldaðu reksturinn
Lykilaðgangur í netbankaRafræn skjöl og birtingarB2B
Ráðgjöf
FyrirtækjaráðgjöfFagfjárfestarEinkabankaþjónusta fyrirtækjaMarkaðsviðskiptiGjaldeyrismiðlun
Þinn árangur
Allt fyrir fjármálastjórannÁrangur viðskiptavina
Stjórnskipulag
StjórnFramkvæmdastjórnStjórnarhættirStefnan okkarArion samstæðanSkipuritEignir til sölu
Mannauður
VinnustaðurinnÚtskriftarprógrammSækja um starfStarfsmannaleit
Sjálfbærni
Okkar sjálfbærniSjálfbær fjármál SFDRStyrkir
Þjónusta
Útibú og hraðbankarHafðu sambandVelkomin í viðskiptiArion appiðNetbanki Arion
Regluverk
Áreiðanleikakönnun einstaklingaÁreiðanleikakönnun lögaðilaRéttarúrræði viðskiptavinaReglur og skilmálarPersónuverndFyrirvararVefkökur
Gögn
Vextir og verðskráGjaldmiðlarUmsóknir og eyðublöð
Fjölmiðlar
Samskipti við fjölmiðlaMyndabankiFréttirGreinarArion greining
Arctic investments
Fjárhagsupplýsingar
LykiltölurUppgjör og kynningarFjárhagsdagatalÁhætta og eiginfjárhlutfallHluthafafundir og aðalfundirFjárhagsleg markmið og framtíðarsýn
Hlutabréf
Skráð hlutabréfHluthafalistiFlagganirGreinendur
Skuldabréf
Fjármögnun og útgáfulýsingEndanlegir skilmálarSértryggð skuldabréfSjálfbær fjármálaumgjörðLánshæfismatÚtgáfuáætlun
Miðlun
Tengiliðir fjárfestaKauphallartikynningarSkráning að kauphallartilkynningum

Við tökum vel á móti þér

Það er einfalt og þægilegt að stofna til viðskipta hjá okkur

Velkomin í viðskiptiHafa samband
Þjónustuver

Opið virka daga 9-16

+354 444 7000

Styttu þér leið
Útibú og hraðbankarVextir og verðskráUmsóknir og eyðublöðReglur og skilmálar
Áreiðanleikakönnun
EinstaklingarFyrirtækiSkráning skilríkja
Netsvik

netsvik@arionbanki.is

Netsvik
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedInTikTok

Arion banki

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Einstaklingar
  2. ▸
  3. Fræðsla og ráðgjöf
  4. ▸
  5. Góð ráð þegar verslað er á netinu

Of gott til að vera satt?

Rambaðirðu á gott tilboð? Mögulega of gott til að vera satt? Ef tilboð virðist grunsamlegt, eða eitthvað í umgjörð verslunar virkar ótrúverðugt, er best að staldra við og kynna sér hlutina betur.

Fyrirtæki - móttaka
Netkort

Netkort fyrir netkaup

Netkort er góður valkostur fyrir þá sem vilja vera með aukakort fyrir kaup á netinu. Kortið kostar ekkert, er umhverfisvænt og aðgengilegt í Arion appinu.

Sjá nánar um netkort

Ver­um alltaf á varð­bergi í net­við­skip­um

Veistu við hvern þú ert að versla?

Áður en þú gefur upp kortaupplýsingar er gott að kynna sér vöruna og seljandann vel. Ef seljandi er óþekktur er got að leita að nafni verslunarinnar á netinu, eða spyrjast fyrir um reynslu annarra.

Það er öruggast að versla við aðila sem þú þekkir og veist að aðrir hafa góða reynslu af.

Stemm­ir þetta?

Þegar þú verslar á netinu þarftu gjarnan að staðfesta kaupin með rafrænum skilríkjum eða í Arion appinu. Þessi staðfesting er ígildi þess að samþykkja færslu með PIN-númeri.

Það er mikilvægt að athuga hvort upphæð, mynt og nafn seljanda á staðfestingarskjá stemmi, því ef þú staðfestir kaupin er færslan óafturkræf.

Til­kynn­ing frá sölu­að­ila

Eru skilaboðin sannarlega frá aðilanum sem þú varst að versla við? Er vefslóðin rétt? Er netfangið eðlilegt? Er um sama gjaldmiðil að ræða? Stemmir upphæðin við þá upphæð sem birtist á staðfestingarskjá í appinu?
Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við söluaðila.

Færðu fríu pruf­una frítt?

Það getur verið freistandi að fá fría prufuáskrift. Áður en þú gefur upp kortanúmer skaltu þó skoða smáa letrið vel. Skilmálar segja gjarnan að kortið verði skuldfært ef þú segir ekki upp áskriftinni innan ákveðins tímaramma.

Netsvik

Borga í er­lendri mynt eða ís­lensk­um krón­um?

Erlendir seljendur bjóða viðskiptavinum oft að ganga frá kaupum í íslenskum krónum. Gengið sem þeir bjóða er þó gjarnan óhagstæðara en gengi Arion banka. Það er því gott að kíkja á kjörin sem bjóðast.

Ein­föld ráð í bar­átt­unni við net­þrjóta

Lykilorð og leyninúmer

Aldrei gefa öðrum upp notandanafn og lykilorð eða leyninúmer á reikningum þínum. Jafnframt skaltu ekki gefa öðrum upp SMS kóða. Gott er að temja sér að nota aldrei sama lykilorðið á tveimur stöðum.

Kredit- og debetkort

Aldrei gefa upp kortaupplýsingar (kortanúmer, gildistíma, CVV númer) á samfélagsmiðlum, með símtali, í tölvupósti eða í gegnum SMS.

Óþekkt innskráning í Arion appið

Ef þú fékkst tölvupóst um innskráningu í Arion appið sem þú kannast ekki við skaltu bregðast hratt við með því að uppfæra öryggisstillingar appsins og fjarlægja tæki sem þú þekkir ekki.

Innskráning með rafrænum skilríkjum

Vertu á varðbergi gagnvart innskráningarbeiðnum með rafrænum skilríkjum. Hugsaðu um rafrænu skilríkin þín eins og peningaveski.

Ef einhver bæði þig um að rétta sér veskið þitt yrði fyrsta hugsun að hafna beiðninni. Sama gildir um rafrænu skilríkin þín.

Greiðslufyrirmæli

Ef þú færð tölvupóst, SMS eða símtal frá einhverjum með greiðslufyrirmælum er gott að hafa samband við viðkomandi einstakling, fyrirtæki eða stofnun til að athuga hvort greiðslan eigi í raun rétt á sér.

Gefðu þér tíma og láttu aldrei undan þrýstingi frá þriðja aðila.

Fylgstu með færslunum þínum

Netþrjótar beita alls kyns klækjabrögðum. Til að mynda taka þeir oft frekar litlar en stórar upphæðir út af kortum svo að erfiðara sé að átta sig á því sem er að gerast. Fylgstu með færslunum og tilkynntu strax ef þú kemur auga á eitthvað óeðlilegt. Þú getur líka fryst kortið í Arion appinu eða með því að hringja í 444 7000.

Svona reyna svikarar að ná þér

Það er brýnt að vera á varðbergi gagnvart ólíkum svikaleiðum og þekkja hvernig má varast þær.

Lentir þú í netsvikum?

Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Utan almenns opnunartíma er hægt að hafa samband við vaktþjónustu korthafa í síma 525 2000.

Jafnframt minnum við á að í Arion appinu er alltaf hægt að frysta kreditkortið og koma þannig í veg fyrir frekari misnotkun.

Grun­ur um netsvik?

Þú getur tilkynnt netsvik með því að senda okkur tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is.

Eftir atvikum má einnig tilkynna þau til lögreglunnar í síma 444 1000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið cybercrime@lrh.is.

Hægt er að kynna sér netsvik nánar á eftirtöldum vefsíðum:

  • Netoryggi.is

  • Logreglan.is

  • Persónuvernd

  • SAFT

  • Enisa

  • Cert.is

Við erum á svika­vakt­inni

Svikavakt Arion banka sinnir samskiptum við viðskiptavini sem lenda í svikum og starfar náið með innra eftirliti Arion banka og Rapyd.

Starfsfólk vaktarinnar er einnig vakandi fyrir grunsamlegum færslum og hefur samband við viðskiptavini ef þau koma auga á slíkt.

Svikavaktin er opin virka daga frá kl. 9:00 til 22:00 og frá kl. 10:00 til 22:00 um helgar og á frídögum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á netfangið netsvik@arionbanki.is.