Við brúum bilið
Stundum koma útgjöld á óheppilegum tíma. Þá er þörf fyrir einfaldar lausnir sem bjóða upp sveigjanleika.

Stundum koma útgjöld á óheppilegum tíma. Þá er þörf fyrir einfaldar lausnir sem bjóða upp sveigjanleika.

Allir geta lent í því að þurfa aðeins meira svigrúm, hvort sem það er fyrir bílinn, heimilið eða eitthvað annað óvænt. Skammtímalán geta hentað til að mæta þessum óvæntu útgjöldum, en upphæð láns fer eftir lánaheimild hvers og eins.
Þar sem aðstæður og tilefni geta verið mismunandi bjóðum við upp á nokkrar nokkrar tegundir skammtímalána sem henta fyrir mismunandi aðstæður.

Núlán getur verið góður kostur ef upp koma óvæntar aðstæður og þú þarft að brúa bilið. Það getur einnig verið hentugt ef þú ert með margar raðgreiðslur, eða lán sem þú vilt sameina.

Engar fastar afborganir eru af heimildinni heldur greiðir þú eingöngu vexti af þeirri upphæð sem þú notar hverju sinni. Þannig getur þú hagað endurgreiðslunni eftir þínum þörfum.

Gefur þér kost á að dreifa kreditkortareikningnum til allt að 18 mánaða. Einnig er hægt að dreifa einstakri færslu á kreditkortinu, t.d. ef keyptur hefur verið dýr hlutur.

Lánaheimild segir til um hversu hátt lán þú getur tekið.
Í Arion appinu getur þú skoðað hver lánaheimildin þín er. Heimildin er reiknuð reglulega og byggir á þinni viðskipta- og fjárhagsstöðu.
Þú getur skipt lánaheimildinni niður, þ.e. á milli mismunandi leiða, s.s. yfirdráttar- og kreditkortaheimildar eða Núláns.

Lánshæfismat er einfaldast að útskýra sem einkunnagjöf eða mat á því hvernig einstaklingar eða fyrirtæki munu standast afborganir af lánum og fjárhagslegum skuldbindingum.

Allir geta lent í því einhvern tímann að þurfa að bregðast við sveiflum í útgjöldum og þá getur verið nauðsynlegt að skipta upp greiðslum til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar.
Það er einfalt að sækja um greiðsludreifingu kreditkorta í appi Arion banka en gott er að hafa nokkra hluti í huga þegar greiðsludreifing er skoðuð.

Að hætta í vinnu getur komið til með ýmsum hætti og haft ólíkar afleiðingar í för með sér. Ef þú ert ráðinn tímabundið í starf eða ákveður sjálfur að segja upp starfi þínu er aðlögunartíminn oft meiri og þú hefur lengri tíma til að hugsa um næstu skref og ert vel undir þau búin.

Greiðslukort eru þægileg og handhæg leið til að greiða fyrir vörur og þjónustu og fá góða yfirsýn yfir eyðslu hvers mánaðar. Einnig fylgir þeim ákveðið öryggi eins og endurkröfuréttur.