Hlutamyndir - sófi teppi kaffibolli gulur

Léttu þér mán­aða­mót­in

Allir geta lent í því einhvern tímann að þurfa að bregðast við sveiflum í útgjöldum og þá getur verið nauðsynlegt að skipta upp greiðslum til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar.

Það er einfalt að sækja um greiðsludreifingu kreditkorta í appi Arion banka en gott er að hafa nokkra hluti í huga þegar greiðsludreifing er skoðuð.

  • Upphæð greiðslukortareikninga er hægt að dreifa niður á allt að 18 mánuði í hvert sinn

  • Það er hægt að hafa allt að 10 greiðsludreifingar í gangi í einu

  • Lágmarksgreiðsla er 10% af upphæð reiknings

Í appinu er hægt að velja greiðsludreifingu kreditkorta og þá stimplar þú einfaldlega inn hversu mikið þú getur borgað inn á reikninginn og þá sést hverjar eftirstöðvarnar eru. Því næst velurðu á hversu marga mánuði þú vilt dreifa greiðslunum.

Að lokum skrifarðu rafrænt undir greiðsludreifingarsamning.

Þetta er sniðug leið til þess að mæta óvæntum útgjöldum en mikilvægt er að hafa í huga að vextir af eftirstöðvunum sem dreift var eru samkvæmt vaxtatöflu bankans hverju sinni og kostnaður við dreifinguna samkvæmt verðskrá bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Sparnaður í áskrift - kaffihús

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna? 

Lesa meira
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira