Bankaþjónusta fyrir einyrkja
Í Arion banka bjóðum við upp á þjónustu sem hentar sérstaklega þörfum einyrkja, hvort sem þú ert bóndi, ráðgjafi, eða verktaki.
Í Arion banka bjóðum við upp á þjónustu sem hentar sérstaklega þörfum einyrkja, hvort sem þú ert bóndi, ráðgjafi, eða verktaki.
Við veitum persónulega ráðgjöf sem hjálpar þér að byggja upp traustan og sjálfbæran rekstur. Einnig bjóðum við rafrænar lausnir sem spara tíma og gerir þér kleift að einbeita þér að rekstirnum.
Einyrkjar geta tekið neytendalán líkt og aðrir einstaklingar. Ef lánið tengist hins vegar rekstri er hægt að sækja um rekstrarlán, svo lengi sem tilgangurinn með láninu er sérstaklega tilgreindur í umsókninni.
Við bjóðum fjölbreytta kreditkort til fyrirtækja. Með bæði einstaklings- og fyrirtækjakorti hefurðu allt sem þú þarft til að halda utan um fjármálin.
Með B2B færð þú betri yfirsýn með rauntímagögnum, getur stytt vinnuferla og aukið hagræði. Einyrkjar sem eru með bókhaldskerfi geta notað B2B vefþjónustu.
Fyrirtækjanotendur geta skipt á milli notenda mismunandi fyrirtækja í netbankanum og sömuleiðis sinna eigin persónulegu reikninga þegar rafræn skilríki eru notuð við innskráningu.
Þetta er mjög einfalt í framkvæmd og sparar tíma við innskráningu, auk þess að einfaldar yfirsýn þeirra sem sinna fjármálum fyrir fleiri en eitt fyrirtæki.


Það er einfaldara en margur heldur að stofna félag utan um atvinnurekstur en það sem er í raun flóknast er að marka sér sérstöðu og tryggja rekstrargrundvöll félagsins. Í grunninn er hægt að skipta ferlinu við stofnun fyrirtækis upp í nokkra hluta.

Þrátt fyrir að einkahlutafélag sé langalgengasta rekstrarform fyrirtækja á Íslandi er það langt í frá eina tegund rekstrar sem hægt er að velja úr. Það er gott að ráðfæra sig við löggiltan endurskoðanda eða lögmann varðandi val á rekstrarformi svo öruggt sé að þú veljir það rekstrarform sem best hentar þínum rekstri. Munurinn á tegundum félaga liggur helst í ábyrgð eigenda, skattlagningu, stofnkostnaði og kröfum um skráningu og bókhald. Hér er hægt að fræðast um hvert rekstrarform fyrir sig

Lánshæfismat er einfaldast að útskýra sem einkunnagjöf eða mat á því hvernig einstaklingar eða fyrirtæki munu standast afborganir af lánum og fjárhagslegum skuldbindingum.