Banka­viðskipti á þín­um for­send­um

Við bjóðum upp á fjölbreytta og þægilega þjónustu í netbankanum, þar sem fyrirtæki geta sinnt öllum helstu bankaviðskiptum sínum.

Allt fyrir fjármálastjórann - maður við skrifborð og tölvu
Appið - skipt á milli notenda

Besta bankaappið - líka fyrir fyrirtæki

Aðgangur að besta bankaappi* síðastliðinna níu ára fylgir netbankanotanda og þar geta notendur framkvæmt flestar fjárhagslegar aðgerðir.

Fyrirtækjanotendur geta á einfaldan hátt skipt á milli notenda mismunandi fyrirtækja í netbankanum þegar rafræn skilríki eru notuð við innskráningu.

Fleiri staf­ræn­ar lausnir

B2B lausnin býður upp á fjölbreytta möguleika til að einfalda fjármálastjórum lífið. Hægt er að tengja bókhaldskerfi beint við netbankann til að auðvelda daglegan rekstur með því að vinna í einu kerfi.

Skilvirkasta og þægilegasta leiðin fyrir launagreiðendur, sem hafa ekki aðgang að launakerfi, að senda inn skilagreinar er í gegnum Mínar síður – launagreiðendavef.

Greiðslusamþykktarferli eykur öryggi við greiðslur. Einn eða fleiri notendur þurfa að samþykkja greiðslur áður en þær eru endanlega inntar af hendi, hvort sem þær eru innlendar eða erlendar.

Þjónustu­þættir net­banka

Innheimtuþjónusta

Skilvirk leið til að gefa út og innheimta viðskiptakröfur fyrir fyrirtæki, félög og einstaklinga með eigin atvinnurekstur.

Erlendar greiðslur

Sparaðu tíma og fyrirhöfn og sendu erlendar greiðslur úr netbankanum. Hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum.

Rafræn skjöl

Rafræn birting skjala í netbankanum, s.s. launaseðlar og greiðsluseðlar. Sparar kostnað í rekstri.

Greiðslubunkar

Þægileg leið til að greiða margar greiðslur samtímis á einfaldan og skilvirkan hátt. Hentar m.a. sérstaklega vel fyrir launagreiðslur.

Umsýsla kreditkorta

Lykilnotendur geta stofnað ný kreditkort, breytt heimildum og haft fulla stjórn á kortum sínum.

Umsýsla reikninga

Lykilnotendur geta stofnað reikninga og sótt um yfirdráttarheimildir á veltureikninga.

Tengt efni

Kreditkort fyrirtækja

Kreditkort

Í Arion appinu er einfalt að hengja greiðslukvittun og skýringu við kortafærslurnar. Um leið og korthafi hefur hengt kvittun eða skýringu við kortafærsluna verða upplýsingarnar aðgengilegar í netbankanum.

Kreditkort

Fyrirtækjakortin okkar bjóða upp á fjölbreytt fríðindi og ferðatryggingar sem henta mismunandi þörfum. Engin færslugjöld eru á kortunum, aðeins fast árgjald. Þau henta bæði fyrir innkaup í verslunum og á netinu, og auðvelt er að tengja þau við Apple Pay eða Google Pay fyrir hraðari og þægilegri greiðslur.