Til að geta millifært í netbankanum til útlanda þarf að byrja á því að hafa samband við bankann og biðja um að opnað sé fyrir gjaldeyrisviðskiptakerfið. Þú getur haft samband í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið arionbanki@arionbanki.is.
Nauðsynlegar upplýsingar til að stofna viðtakanda:
Nafn og heimilisfang viðtakanda (götuheiti, póstnúmer, borg og land)
IBAN númer viðtakanda (Evrópa) eða reikningsnúmer (utan Evrópu)
Nafn og SWIFT kóði fjármálastofnunar viðtakanda
Þegar búið er að stofna nýjan viðtakanda getur það tekið allt að 30 mínútur að fá hann samþykktan. Ef mikið liggur á að fá samþykki er hægt að senda okkur tölvupóst á netfangið foreignpayments@arionbanki.is.
Þegar búið er að stofna viðtakandann og samþykki liggur fyrir getur þú síðan framkvæmt millifærsluna undir Viðskiptatengsl í netbanka eða Millifærslur í Arion appinu.
Algengt er að nota bankaábyrgðir í viðskiptum innanlands og milli landa. Bankaábyrgðir geta liðkað fyrir viðskiptum og dregið úr óvissu í samskiptum við önnur fyrirtæki. Í bankaábyrgð felst að banki ábyrgist með óafturkallanlegum hætti greiðslu fyrir vöru, þjónustu eða vegna vanefnda á samningi, og getur seljandinn því verið öruggur um að fá greitt þó svo viðskiptamaður hans standi ekki í skilum


Hvort sem þú þarft að kaupa eða selja gjaldeyri eða nýta flóknari gjaldeyrisvarnir þá aðlögum við lausnir okkar að þínum þörfum.
Fyrirtæki geta tryggt sér gjaldeyriskaup fram í tímann með framvirkum samningum og mögulegt er að annast flestar tegundir gjaldeyrisviðskipta í gegnum Netbanka.
SWIFT er staðlað samskipta- og fyrirspurnakerfi sem þjónar fjármálastofnunum um allan heim og er öruggur máti til að senda greiðslur á milli landa.
SWIFT kóði Arion banka er: ESJAISRE
