Lyk­il­not­endur í net­bankanum

Við bjóðum fyrirtækjum að skrá valið starfsfólk sem lykilnotendur, en þessir einstaklingar fá þá auknar heimildir til að stýra fjármálunum fyrirtækisins í netbankanum.

Eru tryggingarnar í lag­i?

Hjá okkur færðu ráðgjöf sem er sérsniðin að þínu fyrirtæki

Sterkari fjármál með góðum lausnum

Sem öflugur viðskiptabanki um áratugaskeið höfum við yfirgripsmikla reynslu af því að vinna með fólki sem ber ábyrgð á fjármálum fyrirtækjanna í landinu.

Við útvegum þér lausnir sem spara tíma, bæta yfirsýn og einfalda dagleg störf – og við miðlum þekkingu sem léttir undir með fjármálastjóranum.

Allt fyrir fjármálastjórann - kona við skrifborð

Frá­bær yfir­sýn í net­bankanum

Í netbankanum geturðu sinnt öllum helstu bankaviðskiptum á öruggan og þægilegan hátt, stofnað aðgang fyrir starfsfólk og skilgreint réttindi hvers og eins. Þar að auki er hægt að opna fyrir fjölbreytta þjónustu sem styður við skilvirkan rekstur.

Hröð fjármögnun fyrir­tækja

Fyrirtæki geta nú sótt um yfirdráttarheimildir í netbanka Arion og fengið niðurstöðu á örfáum mínútum. Um er að ræða allt að 20 milljón króna fjármögnun, annaðhvort án frekari trygginga eða með sjálfskuldarábyrgð eigenda. Þessi nýi möguleiki einfaldar umsóknarferlið og eykur aðgengi fyrirtækja að rekstrarfjármögnun í netbankanum. Athugið að einungis lykilnotandi getur sótt um.

Fyrirtæki sækja um yfirdráttarheimildir í netbanka Arion undir yfirliti reikninga. Þar er valið undir hvaða reikning yfirdráttaheimildin fellur.

Hröð fjármögnun fyrirtækja
Appið - einstaklingar og fyrirtæki

Hafðu reksturinn í hendi þér

Í Arion appinu finnur þú fjölbreyttar lausnir sem henta fyrirtækjum og gera líf fjármálastjórans einfaldara og skilvirkara.

Fyrirtækjanotendur geta auðveldlega skipt á milli notenda í appinu, hvort sem er milli fyrirtækja eða sinna eigin persónulegu reikninga.

Þjónusta við fyrir­tæki af öll­um stærð­um og gerð­um

Er fyrirtækið lítið eða stórt? Ertu í inn- eða útflutningi? Er um að ræða þjónustufyrirtæki eða sprota? Við höfum innsýn í rekstur fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.

Við leggjum okkur fram um að skilja ólíkar þarfir og auka skilvirkni í fjármálum og rekstri. Þinn árangur er okkar markmið.

Hjá okkur starfar fjöldi sérfræðinga með langa reynslu og mikla þekkingu á fjármálum fyrirtækja. Megináhersla er lögð á að þjónusta og sinna þörfum lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem gera kröfur um gott samstarf, þekkingu og góða þjónustu.

Fyrir stærri fyrirtæki bjóðum við upp á teymi sérfræðinga með þekkingu á ýmsum sviðum. Teymið veitir alhliða bankaþjónustu í takt við þarfir hvers fyrirtækis. Þjónustan snýr bæði að málum tengdum fjármögnun auk allrar almennrar bankaþjónustu.

Við aðstoðum ykkur við að tryggja innheimtu krafna og dráttarvaxta, sem dregur úr kostnaði og eykur hagkvæmni í rekstri. Þannig aukum við hagræði, tryggjum skilvirkni og bætum rekstur.

Dag­legur rekstur

Kreditkort

Fjölbreytt úrval kreditkorta með ólíka eiginleika til þess að mæta þörfum í fyrirtækjarekstri.

Innheimtuþjónusta

Innheimtuþjónusta er skilvirk leið til að gefa út og innheimta viðskiptakröfur fyrir fyrirtæki, félög og einstaklinga með eigin atvinnurekstur.​ Þannig sparast bæði tími og peningar.

B2B

Tengdu bókhaldskerfið við netbankann. Með B2B færð þú betri yfirsýn með rauntímagögnum, getur stytt vinnuferla og aukið hagræði.

Lykilnotendur

Lykilnotandi í netbanka getur stýrt aðgangi, stofnað reikninga og kort, sótt um yfirdráttarheimild, breytt heimildum kreditkorta, stofnað eða afturkallað umboð og endursett lykilorð notenda.

Fjöl­breytt­ar leið­ir til fjármögnun­ar

Við viljum styðja fyrirtæki við að ná sínum markmiðum og skapa jákvæð áhrif í samfélaginu. Til þess bjóðum við fjölbreytt úrval lána sem henta ólíkum þörfum.

Hvort sem það eru framkvæmdir á döfinni, breytingar í rekstri eða þörf á fjármögnun til skamms tíma þá höfum við úrval fjármögnunarleiða.

Fjárfestingar fyrirtækja geta verið af ýmsum toga og við viljum mæta ólíkum þörfum viðskiptavina.

Bíla- og tækjalán Arion eru góður valkostur fyrir fyrirtæki, bændur og einyrkja.

Góð­ar tryggingar eru mik­il­væg­ar í öll­um rekstri

Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsemina eða starfsfólkið. Þú færð ráðgjöf sem er sérsniðin að þínu fyrirtæki hjá okkur​

Vörður nýtur trausts hjá yfir 6.000 fyrirtækjum og stofnunum. Sérfræðingar okkar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu þegar kemur að fyrirtækjum. Við leggjum áherslu á persónulega og faglega þjónustu sem tekur mið af þörfum fyrirtækisins hverju sinni.

Allt fyrir fjármálastjórann - tryggingar