
Fullt af fjöri í allt sumar!
#ArionSport á samfélagsmiðlum.

#ArionSport á samfélagsmiðlum.
Eftirspurnin var gríðarleg í fyrra og fötin kláruðust á mettíma. Í ár ákváðum við að breyta aðeins til og bæta við sérstakri íþróttatreyju, meðal annars með HM í fótbolta í huga, ásamt nýjum fötuhatti. Engar áhyggjur — peysan vinsæla er áfram hluti af línunni.
Afraksturinn má sjá hér fyrir neðan.



Við ætlum að vera með alls konar leiki og sprell á Instagram og TikTok í sumar þar sem markmiðið er fyrst og fremst að brjóta upp daginn í unglingavinnunni og gera eitthvað skemmtilegt!
Við hvetjum alla unglinga til að taka upp hresst og skemmtilegt myndband af sér að störfum í sumar, tagga Arion og merkja það með #ArionSport.
Við munum síðan hitta þau sem eru með eftirminnilegustu myndböndin og færa þeim fullan farm af hamingju og gleði; Arion Sport föt, gjafabréf, nammi o.fl.

Allir unglingar sem eru fæddir 2010, 2011 og 2012 og fá launin sín greidd inn á reikning hjá okkur geta unnið 100.000 kr. í sumar.
Þau þurfa ekki að skrá sig sérstaklega til leiks – nóg er að fá eina launagreiðslu inn á reikning til að eiga möguleika. Við drögum út fimm heppna í lok sumars.
Fermingarbörn og jafnaldrar sem leggja pening inn á Framtíðarreikning, Íbúðasparnað eða fjárfesta í sjóðum Stefnis fyrir 31. desember 2026 geta fengið allt að 32.000 kr. í mótframlag frá okkur.
Ef lagðar eru 30.000 kr. inn á Framtíðarreikning eða Íbúðasparnað fæst 6.000 kr. mótframlag. Einnig fæst 5% af þeirri upphæð sem lögð er inn umfram 30.000 kr. en þó að hámarki 200.000 kr. Það sama gerum við ef keypt er í sjóðum Stefnis.
Því getur mótframlagið verið allt að 32.000 kr. í heildina.
Ef greitt er inn á Framtíðarreikning eða Íbúðasparnað í gegnum Arion appið, netbanka eða með öðrum hætti er mótframlagið greitt næsta virka dag.
Ef keypt er í sjóðum Stefnis í gegnum Arion appið, netbanka eða með öðrum hætti er mótframlagið greitt innan mánaðar. Ef keypt er í nokkrum sjóðum dreifist mótframlagið í sjóðina í sömu hlutföllum og keypt var.
Mótframlagið er aðeins afgreitt ef öll skilyrðum er fullnægt. Athugið að eitt mótframlag er fyrir hvert fermingarbarn.
Seðlar eru að verða sjaldséðir og því getur verið hentugt að millifæra vasapeninginn beint á debetkort barnsins.
Foreldrar og forráðamenn geta sótt um debetkort fyrir börnin sín við 9 ára aldur. Kortið kostar ekkert og greiða börn engin færslugjöld.
Framtíðarreikningur er verðtryggður reikningur sem hentar vel fyrir langtímasparnað. Reikingurinn er góð gjöf fyrir þá sem vilja leggja grunn að framtíð barna og unglinga.
Auðvelt er að stofna reikninginn í Arion appinu og geta forráðamenn stofnað hann með örfáum smellum.
Til að geta átt viðskipti með sjóði þurfa forráðamenn að byrja á því að stofna til verðbréfaviðskipta fyrir barnið en hægt er að gera það i Arion appinu.
Þú velur upphæðina sem hentar – ekkert lágmark og enginn kostnaður við kaup eða sölu.
Íbúðasparnaður er frábær kostur fyrir þau sem vilja leggja drög að framtíðinni.
Það góða við reikninginn er að þú getur notað peninginn í hvað sem er, hvort sem það er upp í íbúð, bílpróf, ferðalög eða bara eitthvað allt annað.
Forsjáraðilar geta stofnað Íbúðasparnað í Arion appinu.


Við leggjum áherslu á að auðvelda fjölskyldum að halda utan um fjármálin sín með einföldum og þægilegum hætti.
Í Arion appinu ertu ekki einungis með góða yfirsýn yfir fjármálin þín heldur ertu líka með góða yfirsýn yfir fjármál barnanna. Þar að auki geta makar veitt umboð á reikninga sín á milli og þar með gert fjármál heimilisins enn einfaldari og þægilegri.

Að fara í bankann og stofna reikning, fá aðgang að netbanka og fá sitt fyrsta kort til að greiða með eru allt saman stór skref í lífi barna og unglinga.
Hluti af því að þroskast og verða fullorðin er að læra smám saman að taka ákvarðanir um peninga og skilja hvernig fjármál virka. Það þarf þó að gerast í smáum skrefum og mikilvægt er að kenna börnum og unglingum á fjármál líkt og á aðra stóra þætti í lífinu.

Í fyrstu virðist það kannski ekki mikil breyting á lífinu að verða 18 ára. Það er eins að vakna 17 ára og 18 ára og verkefni dagsins eru þau sömu. Lagalega er þó mjög mikill munur á milli þessara tveggja daga og það er ótalmargt sem breytist þegar klukkan slær miðnætti á síðasta degi sautjánda aldursársins.

Varstu að byrja í fyrstu vinnunni? Til hamingju með það! Það er stórt skref að hefja störf á fyrsta vinnustaðnum og margt sem hafa þarf í huga. Við tókum saman nokkur hagnýt ráð sem gott er að hafa á bak við eyrað.

Viðbótarlífeyrissparnaður er ein tegund séreignarsparnaðar. Um er að ræða sparnaðarform sem felur í sér að launþegi má ráðstafa allt að 4% af heildarlaunum sínum í viðbótarlífeyrissparnað og launagreiðandi greiðir 2% mótframlag.

Ísabella Jóhannsdóttir er sundgarpur og fermingarbarn sem býr ásamt foreldrum sínum, systrum og hundinum Perlu á Akureyri. Ísabella lítur á það sem allstór tímamót að fermast.