Arion fríðindi - stelpur í trjám

Banka­þjónusta fyrir börn og ung­linga

Að fara í bankann og stofna reikning, fá aðgang að netbanka og fá sitt fyrsta kort til að greiða með eru allt saman stór skref í lífi barna og unglinga.

Hluti af því að þroskast og verða fullorðin er að læra smám saman að taka ákvarðanir um peninga og skilja hvernig fjármál virka. Það þarf þó að gerast í smáum skrefum og mikilvægt er að kenna börnum og unglingum á fjármál líkt og á aðra stóra þætti í lífinu.

Fyrstu kynni barna af bankanum eru oftast að koma með sparibaukinn, leggja peninginn inn á bankabók og fá jafnvel glaðning með heim.

Börn og unglingar geta átt sína eigin reikninga í bankanum og með samþykki foreldra eða forráðamanna fengið aðgang að netbanka eða appi til að skoða stöðu sinna reikninga. Foreldrar geta óskað eftir bæði skoðunar- og millifærsluaðgangi og þannig fylgst með fjármálum barnsins á öruggan hátt.

Þegar börn ná níu ára aldri rýmkar heimild þeirra til að tengjast bankanum. Þá geta þau, með samþykki foreldra, fengið útgefið debetkort og fengið aðgang að netbanka eða appi til að skoða stöðu sinna reikninga. Þetta er góð leið til að kynna börnum og unglingum fyrir bankaþjónustu svo þau öðlist sjálfsöryggi til þess að nýta sér þjónustuna þegar þau verða eldri.

Það er aldrei of snemmt að byrja að leggja fyrir. Fyrir þau sem vilja byggja upp langtímasparnað er hægt að stofna bundinn reikning, til dæmis Framtíðarreikning Arion banka, sem er ætlaður sparnaði frá fyrstu tíð og bundinn til 18 ára aldurs.

Besta leiðin til að kenna börnum á fjármál er að sýna þeim hvernig bankareikningar virka og hvaða áhrif það hefur á innistæðuna þegar greitt er fyrir eitthvað með korti.

Ráðgjafar okkar taka alltaf vel á móti börnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra og geta ráðlagt með stofnun reikninga og sparnað.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Viðbótarlífeyrir - kona með kaffibolla

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna? 

Lesa meira
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira