Körfuboltastelpa

Að verða fjárráða

Hvað þýðir það að verða fjárráða?

Í fyrstu virðist það kannski ekki mikil breyting á lífinu að verða 18 ára. Það er eins að vakna 17 ára og 18 ára og verkefni dagsins eru þau sömu. Lagalega er þó mjög mikill munur á milli þessara tveggja daga og það er ótalmargt sem breytist þegar klukkan slær miðnætti á síðasta degi sautjánda aldursársins.

Þegar þú verður 18 ára ertu orðinn fullorðinn og sjálfráða gagnvart lögum landsins. Forráðamenn þínir bera ekki lengur ábyrgð á þér heldur er ábyrgðin öll þín eigin. Þú hefur loksins réttindi til að taka þátt í kosningum í landinu og hefur öll önnur réttindi sem fullorðnir einstaklingar hafa. Þú þarft ekki lengur leyfi forráðamanna til þess að sækja um vegabréf, rafræn skilríki eða til þess að ferðast á eigin spýtur.

Forráðamenn þínir hafa heldur ekki aðgang að persónulegum gögnum um þig, hvorki heilbrigðisgögnum né fjármálagögnum. Þetta þýðir að þegar þeir skrá sig inn í netbankann sinn sjá þeir ekki lengur yfirlit yfir bankareikningana þína og geta ekki fylgst með fjármálum þínum.

Þegar þú ert orðinn fjárráða hefur þú einnig möguleika á því að sækja um kreditkort, yfirdrátt og önnur lán án aðkomu forráðamanna þinna. Það er því mjög mikilvægt að þú hafir góða yfirsýn yfir fjármálin, skiljir hvað í skuldsetningu felst og sért ekki að eyða um efni fram. Ef þú lendir í því að hafa skuldsett þig um of og ræður ekki við að greiða af lánum þínum er það eingöngu á þinni eigin ábyrgð.

Það er alltaf sniðugt að óska eftir viðtali við fjármálaráðgjafa til þess að fara yfir þessi tímamót og til að fá yfirsýn yfir fjárhagslega stöðu. Sjá meira hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Viðbótarlífeyrir - kona með kaffibolla

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna? 

Lesa meira
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira