Þegar þjóðin sameinast fyrir framan skjáinn

Það er eitthvað sérstakt við stórmót í handbolta. Fjölskyldur og vinir koma saman fyrir framan skjáinn, spennan magnast með hverjum leik og allt í einu er þjóðin öll komin í sama liðið. Við fögnum saman og stöndum þétt við bakið á okkar fólki.

Handboltinn hefur einstakt lag á að þjappa okkur saman, brúa bilið á milli kynslóða og skapa augnablik sem lifa lengi í minningunni.

Leikir Íslands á EM 2026

Fimmtudaginn 3. desember 2026

kl. 16:30

Ísland gegn Slóveníu

Laugardaginn 5. desember 2026

kl. 16:30

Ísland gegn Svartfjallalandi

Mánudaginn 7. desember 2026

kl. 19:00

Ísland gegn Ungverjalandi

Allir leikirnir eru í A-riðli og fara fram í Oradea í Rúmeníu.

Aðrar upplýsingar

Keppnisdagar

EM fer fram 3. – 20. desember 2026

Fyrirkomulag

Tvö efstu liðin í riðlinum komast áfram í milliriðil

Tímasetningar

Tímasetningar í töflunni eru á íslenskum tíma

Gjöf­ult sam­starf Arion banka og ís­lenska hand­bolt­ans í meira en tvo ára­tugi

Nú styttist í EM 2026 og spennan fer vaxandi. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta heldur til borgarinnar Oradeu í Rúmeníu þar sem þær munu leika við fremstu handboltakonur Evrópu. Við hjá Arion banka höfum um árabil stutt við íslenskan handbolta og það er alltaf sérstakt tilhlökkunarefni þegar landsliðin okkar halda á stórmót enda má segja að handboltinn sé þjóðaríþrótt okkar Íslendinga.

EM í ár verður fjórða Evrópumót íslenska kvennalandsliðsins. Liðið tók fyrst þátt árið 2010, aftur árið 2012 og sneri svo aftur á stóra sviðið á EM 2024. Þar náðist merkilegur áfangi þegar Ísland vann sinn fyrsta leik í lokakeppni EM, 27–24 sigur á Úkraínu. Síðan þá hefur liðið haldið áfram að sækja fram af miklum krafti og á HM 2025 komst Ísland í fyrsta sinn í milliriðil á heimsmeistaramóti, eftir sigur á Úrúgvæ.

Þetta er magnaður árangur fyrir örþjóð eins og okkur – stærstu minnstu þjóð í heimi. Fyrir litla þjóð á borð við Ísland fylgir því einhver alveg sérstakur galdur að ná árangri í íþróttum á alþjóðasviðinu. Fáar þjóðir standa líka jafn þétt við bakið á landsliðum sínum og við gerum. Sterkar fyrirmyndir á vellinum kveikja áhuga næstu kynslóðar og minna okkur á hversu miklu máli öflugt íþróttastarf skiptir. Við hjá Arion erum stolt af því að hafa staðið þétt við bakið á kröftugu íþróttafólki með áratugalöngum stuðningi okkar.

Svo elskum við líka bara stemninguna á stórmótum í handbolta, þegar ættingjar og vinir koma saman fyrir framan sjónvarpsskjáinn til að styðja við bakið á íþróttafólkinu okkar í æsispennandi rimmum gegn fremstu leikmönnum íþróttarinnar. Handbolti er íþrótt sem þjappar okkur saman og brúar um leið bilið á milli kynslóðanna.

Arion banki hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs við íslenska kvennalandsliðið.

Áfram Ísland!

HSI-EM-kvenna-4
HSI-EM-kvenna-3
HSI-EM-kvenna-1
HSI-EM-kvenna-2
01 / 03

Greinar

HSÍ - Sandra Erlingsdóttir - hraðaspurningar

Hraðaspurningar: Sandra Erlings

Við fengum Söndu Erlingsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í handbolta, til að taka laufléttar hraðaspurningar. Sandra leiðir stelpurnar okkar á HM 2025 í Þýskalandi og Hollandi um þessar mundir.

Lesa meira
HSÍ - Sandra Erlingsdóttir - viðtal

Alin upp í íþróttasalnum

Viðtal við Söndru Erlingsdóttur, fyrirliða íslenska landsliðsins í handbolta.

Lesa meira
HSÍ - Arnar Pétursson - hraðaspurningar

Hraðaspurningar: Arnar Pétursson

Við fengum Arnar Pétursson, þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, til að svara nokkrum laufléttum hraðaspurningum. Arnar stýrir um þessar mundir stelpunum okkar á HM 2025 í Þýskalandi og Hollandi.

Lesa meira
HSÍ - Janus Daði Smárason - hraðaspurningar

Hraðaspurningar: Janus

Janus Daði Smárason fæddist árið 1995 og hóf handboltaferil sinn í heimabænum Selfossi. Eftir að hafa einnig stimplað sig rækilega inn hjá Haukum hélt hann svo út fyrir landsteinana og lék með Århus Håndbold í Danmörku.

Lesa meira
HSÍ - Janus Daði Smárason - viðtal

Þú spilar fyrir landsliðið vegna þess að þú brennur fyrir íþróttinni

Heimsmeistaramót karla í handknattleik fer nú fram í Króatíu, Danmörku og Noregi og hefur íslenska landsliðið átt frábæra byrjun, unnið alla leikina í riðlinum og strákarnir okkar því komnir í milliriðil með fullt hús stiga. Arion banki er sem fyrr samstarfsaðili og bakhjarl landsliðsins og við heyrðum stuttlega í Janusi Daða Smárasyni, bakverðinum knáa.

Lesa meira
HSÍ - Viggó Kristjánsson - hraðaspurningar

Hraðaspurningar: Viggó

Viggó Kristjánsson hefur notið mikillar velgengni í handboltanum bæði hér heima og úti í Þýskalandi. Hann hóf ferilinn með Gróttu en tók ungur skrefið út í atvinnumennsku og hefur leikið í Þýskalandi við frábæran orðstír.

Lesa meira
HSÍ - Viggó Kristjánsson - viðtal

Handbolti á fyrst og fremst að vera skemmtilegur

Heimsmeistaramót karla í handknattleik fer nú fram í Króatíu, Danmörku og Noregi og hefur íslenska landsliðið átt frábæra byrjun, unnið alla leikina í riðlinum og strákarnir okkar því komnir í milliriðil með fullt hús stiga. Arion banki er sem fyrr samstarfsaðili og bakhjarl landsliðsins og við heyrðum stuttlega í Viggó Kristjánssyni sem er einn reynslumesti leikmaður Íslands á mótinu.

Lesa meira
HSÍ - Gísli Þorgeir Kristjánsson - viðtal

Við ætlum okkur stóra hluti

Evrópukeppni karla í handknattleik er handan við hornið í Þýskalandi, sem margir kalla Mekka handboltans, og leikur Ísland fyrsta leik sinn í mótinu gegn Serbíu í München á morgun. Arion banki er eins og áður samstarfsaðili landsliðsins og við tókum púlsinn á leikstjórnandanum Gísla Þorgeiri Kristjánssyni eftir síðustu vináttulandsleikina fyrir EM.

Lesa meira
HSÍ - Allar hetjurnar 2023

Allar hetjurnar í einni auglýsingu

Við Íslendingar erum orðin góðu vön þegar kemur að stórmótum og íslenska karlalandsliðinu í handbolta og það hefur nánast verið hægt að ganga að því vísu síðustu ár að þjóðin hefur getað fylgst með handboltastrákunum okkar og hvatt þá áfram á stórmóti í janúar á hverju ári.

Lesa meira
HSÍ - Áfram stelpurnar okkar

Áfram stelpurnar okkar!

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að íslenska kvennalandsliðið í handbolta er að hefja keppni á HM á næstu dögum. Það var ævintýralegt þegar liðið komst óvænt inn á mótið eftir að hafa litið í lægra haldi í umspili fyrir sæti á mótinu. Við í Arion banka erum gríðarlega spennt að fylgjast með stelpunum okkar og hlökkum mikið til að hvetja þær áfram.

Lesa meira
01 / 08
Styðjum við bakið á stelpunum okkar! - Arion banki