Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð.
Uppruni gagna: Bloomberg
Þú getur með einföldum hætti:
Fjárfest í 500 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna í einu
Fylgt þróun bandaríska hlutabréfamarkaðarins
Dreift áhættunni á fjölda fyrirtækja og atvinnugreina
S&P 500 er vísitala sem fylgir gengi 500 stærstu skráðu fyrirtækjanna á markaði í Bandaríkjunum.
Þegar þú kaupir í sjóðnum fjárfestir þú því óbeint í öllum fyrirtækjunum sem mynda vísitöluna.
Þar sem nokkrar sveiflur geta verið á genginu til skemmri tíma er mælt með að lágmarkstími fjárfestingar sé fimm ár. Sjóðurinn er því hugsaður sem langtímafjárfesting.
Fjárfestingarstefna sjóðsins er að fylgja afkomu vísitölunnar eins náið og mögulegt er, hvort sem vísitalan hækkar eða lækkar, en um leið að leitast við að lágmarka eins og unnt er frávik milli afkomu sjóðsins og afkomu vísitölunnar. Sjóðurinn mun leitast við að endurspegla vísitöluna með því að eiga öll verðbréf sem í henni eru í svipuðu hlutfalli og vægi þeirra í vísitölunni. Sjóðurinn kann að nota afleiður til að tryggja skilvirka stýringu eignasafnsins og til gjaldeyrisvarna.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun.
Fjárfesting í erlendum sjóðum getur jafnframt falið í sér gjaldeyrisáhættu. Verðmæti fjárfestingar og ávöxtun hennar geta því bæði aukist og minnkað vegna breytinga á gengi þeirra gjaldmiðla sem viðkomandi sjóður er skráður eða gerður upp í gagnvart íslenskri krónu. Við kaup í erlendum sjóðum kann fjárfestir jafnframt að eiga í gjaldeyrisviðskiptum sem sæta kostnaði og gengissveiflum.
Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu, lykilupplýsingum og öðrum viðeigandi gögnum má finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, þar á meðal upplýsingar um áhættu og hvort umræddur sjóður teljist verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Slík skjöl eru almennt aðgengileg hjá rekstraraðila, útgefanda eða dreifingaraðila viðkomandi sjóðs.
Skattaleg meðferð fjárfestinga ræðst af aðstæðum hvers fjárfestis fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Fjárfestar eru því hvattir til að kynna sér skattaleg áhrif fjárfestinga og leita eftir atvikum ráðgjafar sérfræðinga.
Upplýsingar sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og ber hvorki að líta á þær sem tilboð né sem persónulega fjárfestingarráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en engin ábyrgð er tekin á því að þær séu réttar. Engin ábyrgð er tekin á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.
Sjóðurinn fylgir þróun S&P 500-vísitölunnar sem þýðir að hann fjárfestir í 500 stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna.
Sjóðurinn hentar þeim sem þola nokkrar sveiflur í ávöxtun, en ráðlagður lágmarkstími fjárfestinga er fimm ár.