Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð.
Uppruni gagna: Stefnir hf.
Þú getur með einföldum hætti:
Fjárfest í stórum og meðalstórum fyrirtækjum út um allan heim
Dreift áhættunni á fjölda fyrirtækja og atvinnugreina á heimsvísu
Fjárfest í ábyrgum fyrirtækjum sem fylgja UFS-stöðlum
Sjóðurinn fylgir MSCI World Screened Choice Index.
Vísitalan fylgir gengi stórra og meðalstórra fyrirtækja á þróuðum mörkuðum um allan heim.
Þegar þú kaupir í sjóðnum fjárfestir þú því óbeint í öllum fyrirtækjunum sem mynda vísitöluna.
UFS stendur fyrir umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti.
Viðmiðin hjálpa til við að bera kennsl á fyrirtæki sem starfa eftir þessum stöðlum og sýna þannig samfélagslega ábyrgð í verki.
Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í fyrirtækjum sem uppfylla þessi viðmið.
Þar sem nokkrar sveiflur geta verið á genginu til skemmri tíma er mælt með að lágmarkstími fjárfestingar sé fimm ár. Sjóðurinn er því hugsaður sem langtímafjárfesting.
Sjóðurinn fylgir afkomu MSCI World Screened Choice Index vísitölunnar eins náið og mögulegt er, hvort sem vísitalan hækkar eða lækkar. Vísitalan mælir gengi stórra og meðal stórra fyrirtækja með starfsemi á þróuðum mörkuðum um allan heim. Vísitalan útilokar úr mælingunni þau fyrirtæki sem standast ekki kröfur um UFS(umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti) skilyrði. Sjóðurinn hentar þeim sem vilja fjárfesta í ábyrgum fyrirtækjum í traustum löndum á heimsvísu og þola þó nokkrar sveiflur í ávöxtun. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er fimm ár.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun.
Fjárfesting í erlendum sjóðum getur jafnframt falið í sér gjaldeyrisáhættu. Verðmæti fjárfestingar og ávöxtun hennar geta því bæði aukist og minnkað vegna breytinga á gengi þeirra gjaldmiðla sem viðkomandi sjóður er skráður eða gerður upp í gagnvart íslenskri krónu. Við kaup í erlendum sjóðum kann fjárfestir jafnframt að eiga í gjaldeyrisviðskiptum sem sæta kostnaði og gengissveiflum.
Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu, lykilupplýsingum og öðrum viðeigandi gögnum má finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, þar á meðal upplýsingar um áhættu og hvort umræddur sjóður teljist verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Slík skjöl eru almennt aðgengileg hjá rekstraraðila, útgefanda eða dreifingaraðila viðkomandi sjóðs.
Skattaleg meðferð fjárfestinga ræðst af aðstæðum hvers fjárfestis fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Fjárfestar eru því hvattir til að kynna sér skattaleg áhrif fjárfestinga og leita eftir atvikum ráðgjafar sérfræðinga.
Upplýsingar sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og ber hvorki að líta á þær sem tilboð né sem persónulega fjárfestingarráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en engin ábyrgð er tekin á því að þær séu réttar. Engin ábyrgð er tekin á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.
Sjóðurinn fylgir afkomu MSCI World Screened Choice Index vísitölunnar eins náið og mögulegt er, hvort sem vísitalan hækkar eða lækkar. Vísitalan mælir gengi stórra og meðal stórra fyrirtækja með starfsemi á þróuðum mörkuðum um allan heim. Vísitalan útilokar úr mælingunni þau fyrirtæki sem standast ekki kröfur um UFS(umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti) skilyrði. Sjóðurinn hentar þeim sem vilja fjárfesta í ábyrgum fyrirtækjum í traustum löndum á heimsvísu og þola þó nokkrar sveiflur í ávöxtun. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er fimm ár.