25.03.2026

Aðal­fund­ur Varðar

Vörður tryggingar hf. og Vörður líftryggingar hf. hafa verið dótturfélög Arion banka um árabil. Vörður líftryggingar hefur verið hluti af Arion samstæðunni í yfir 30 ár og Vörður tryggingar í rúman áratug. Vörður tryggingar er rótgróið félag sem um fagnar þessar mundir 100 ára afmæli en tryggingafélagið getur rakið sögu sína allt aftur til ársins 1926.

Þannig hefur tryggingaþjónusta verið mikilvægur hluti af þeirri þjónustu sem Arion samstæðan býður viðskiptavinum sínum. Tryggingar Varðar eru viðskiptavinum aðgengilegar í Arion appinu og sameiginlegum útibúum Arion og Varðar víða um land. Tryggingar gegna jafnframt lykilhlutverki í nýju fríðindakerfi Arion samstæðunnar, Arion fríðindi, sem kynnt var til leiks fyrir rúmu ári síðan.

Aðalfundir Varðar félaganna vegna ársins 2025 fóru fram í síðustu viku og venju samkvæmt lá samþykkt ársreikninga fyrir fundunum. Forstjóri Varðar, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, fór yfir reksturinn á árinu. Í máli hennar kom fram að annað árið í röð hafi samsett hlutfall verið undir 90% og vátryggingatekjur á síðasta ári aukist umfram markaðinn eins og þær hafa gert óslitið frá árinu 2017. Benedikt Olgeirsson, fráfarandi stjórnarformaður, benti á að iðgjöld félagsins hafa tvöfaldast síðastliðinn áratug á föstu verðlagi, viðskiptavinum fjölgað um 15 þúsund og markaðshlutdeild vaxið úr 14,6% í 19,1%.

Einnig voru á fundunum kjörnar nýjar stjórnir og tekur Ólafur Hrafn Höskuldsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, við stjórnarformennsku beggja félaga. Ólafur hefur átt sæti í stjórn Varðar trygginga frá árinu 2019.

Auður Björk Guðmundsdóttir, sem var framkvæmastjóri hjá VÍS í um tólf ár og er fyrrum framkvæmdastjóri fjártæknifélagsins Aurbjargar, situr áfram í stjórn Varðar trygginga. Sigurður Viðarsson, sem var forstjóri TM í yfir 15 ár og aðstoðarbankastjóri Kviku banka, kemur nýr inn í stjórn félagsins. Sæmundur Sæmundsson, tölvunarfræðingur sem var framkvæmdastjóri hjá Sjóvá í um sex ár og er fyrrum forstjóri Borgunar og Eflu verkfræðistofu, kemur nýr inn í stjórn Varðar líftrygginga, sem og Auður Þórisdóttir sem er löggiltur endurskoðandi, var sviðsstjóri hjá KPMG um árabil og er formaður endurskoðunarnefndar Icelandair Group, Isavia og Landsvirkjunar.

Benedikt Olgeirsson, sem hefur setið í stjórnum beggja félaga frá árinu 2017 og lengst af sem stjórnarformaður, hættir í stjórnum félaganna. Einnig hætta í stjórn Varðar trygginga þau Steinunn Kristín Þórðardóttir og Guðný Benediktsdóttir, sem sat í stjórn félagsins í rúm tíu ár. Í stjórn Varðar líftrygginga hætta þau Páll Ammendrup Ólafsson og Ingibjörg Arnarsdóttir, sem sat í stjórn í um 15 ár. Á fundinum voru þeim færðar þakkir fyrir góð störf.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira