06.07.2026

Ár­angur í ára­tug

Arion appið hefur verið valið besta bankaappið af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu – tíunda árið í röð.

Um leið og við þökkum viðskiptavinum hjartanlega fyrir traustið og hlýhuginn nýtum við viðurkenninguna sem hvatningu til að halda áfram að gera ennþá betur. Við hjá Arion erum virkilega stolt af þeirri glæsilegu vinnu sem farið hefur fram hér innanhúss á síðustu árum. Svona árangur næst ekki næst ekki nema stór hópur metnaðarfulls starfsfólks leggist á árarnar og geri sitt besta, á hverjum einasta degi.

Öflugt og fjölbreytt bankaapp

Í Arion appinu má sinna öllum daglegum bankaviðskiptum og eins stunda hlutabréfaviðskipti og kaup í sjóðum Stefnis og halda utan um lífeyrismálin. Þá höfum við lagt sérstaka áherslu á það á síðustu misserum að efla stafræna þjónustu Varðar trygginga, sem er hluti af Arion, svo að fjármál og tryggingar vinni ennþá betur saman.

Nýjasta viðbótin eru Skilaboðin mín, þar sem viðskiptavinir geta nálgast allar helstu upplýsingar sem varða viðskipti þeirra og fjármál, auk mikilvægra tilkynninga, á einum og sama staðnum.

Það er okkur metnaðarmál að þróa og bæta Arion appið á hverjum einasta degi þannig að það mæti sem best þörfum allra viðskiptavina okkar, jafnt einstaklinga sem fyrirtækja.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira