15.10.2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október.

Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Bláa hagkerfið

Að þessu sinni stýrði Arion banki tveimur hringborðum á Arctic Circle.

Það fyrra bar yfirskriftina Bláa hagkerfið eða Blue Economy. Til umræðu voru fjárfestingar og lánveitingar í sjávarútvegi, fiskeldi og greinum sem tengjast þeim. Fram kom að mikil uppbygging væri fram undan í fiskeldi og að tryggja þyrfti fjármögnun slíkra verkefna. Einnig væru sóknarfæri hjá fyrirtækjum sem nýta hliðarafurðir eins og Kerecis hefur sýnt og sannað. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi félagsins, tók þátt í umræðunum.

Rúnar Magni Jónsson, forstöðumaður sjávarútvegs og þjónustu, stýrði hringborðinu.

Innviðauppbygging á norðurslóðum

Seinna hringborðið nefndist Innviðir á norðurslóðum eða Infrastructure in the Arctic. Þar voru í brennidepli fyrirhugaðar innviðafjárfestingar á norðurslóðum. Fram kom að lítið hefði gerst á síðustu árum en að mörg stór verkefni væru nú í pípunum. Umræðurnar snerust að stóru leyti um hvernig tryggja mætti fjármögnun verkefnanna, leiða saman fjárfesta og þá sem standa fyrir uppbyggingunni og draga úr áhættunni sem fylgir fjárfestingum af þessum toga.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, stýrði umræðunum.

Fjárfestingar norðurslóða hugsaðar upp á nýtt

Einar Pálmi Sigmundsson, frá fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka, tók enn fremur þátt í pallborði sem bar heitið Fjárfestingar norðurslóða hugsaðar upp á nýtt eða Rewriting the Arctic Investment Narrative.

Þar kom meðal annars fram að svæðið hefði á síðustu árum öðlast nýtt stefnumótandi og efnahagslegt vægi en að enn skorti á að ýta mætti stórum innviðafjárfestingum af stað. Vandinn fælist ekki í skorti á fjármagni heldur þyrfti að laga fjárfestingarverkefnin enn frekar að kröfum fjárfesta og lánveitenda.

Fjölbreyttur hópur ráðstefnugesta

Arctic Circle ráðstefnan er alþjóðlegur vettvangur umræðu um málefni norðurslóða og hefur vaxið mikið að umfangi á síðustu árum og vakið heimsathygli. Viðburðina sótti fólk hvaðanæva að úr heiminum og úr ólíkum geirum og atvinnugreinum; stjórnsýslu, fjármálageiranum, atvinnulífinu, háskólaumhverfinu, fjölmiðlum og víðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira