15.04.2026

Arion banki gef­ur út nýja al­menna viðskipta­skil­mála

Arion banki hefur gefið út nýja almenna viðskiptaskilmála. Skilmálarnir koma í stað sex helstu eldri skilmála bankans þ.e. almennra skilmála innlánsreikninga, debetkortaskilmála, kreditkortaskilmála, netbankaskilmála, app skilmála auk almennra skilmála. Nýju skilmálarnir taka gildi 15. apríl 2026 gagnvart nýjum viðskiptavinum en 15. júní 2026 gagnvart núverandi viðskiptavinum.

Ásamt því að einfalda og fækka skilmálum bankans þá eru ýmis ákvæði uppfærð í ljósi breyttra laga og reglna og orðalag skýrt, m.a. varðandi vinnslu persónuupplýsinga, framkvæmd áreiðanleikakönnunar, sannvottun og öryggi í viðskiptum, samkomulag um samskipti, heimildir forsjáraðila, umboð, stafrænar lausnir, greiðslureikninga og greiðslukort. Þá er nýjum skilmálunum ætlað að veita viðskiptavinum fræðslu um þau atriði sem þar er fjallað um.

Ákvæði skilmálanna sem falla undir gildissvið laga um greiðsluþjónustu teljast vera rammasamningur um greiðsluþjónustu í skilningi þeirra laga. Í samræmi við ákvæði laganna hefur núverandi viðskiptavinur rétt á að tilkynna bankanum um uppsögn rammasamnings fyrir 15. júní 2026 ef hann samþykkir ekki breytingarnar. Núverandi viðskiptavinur telst hafa samþykkt breytingarnar tilkynni hann bankanum ekki um annað fyrir 15. júní 2026.

Helstu efnisbreytingar á almennum viðskiptaskilmálum eru eftirfarandi:

  1. Skýrari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga og aukin fræðsla (grein 3.2).

  2. Ítarlegri upplýsingar um framkvæmd áreiðanleikakönnunar og afhendingu nauðsynlegra upplýsinga (grein 3.3).

  3. Aðferðum við sannvottun viðskiptavina lýst og tekið fram hvernig fara skal með persónubundin öryggisskilríki sem bankinn útvegar til sannvottunar. Tekið fram að viðskiptavinum ber að gæta fyllsta öryggis í viðskiptum og gagnvart fölskum skilaboðum og að kynna sér leiðbeiningar og tilmæli bankans um öryggisráðstafanir og fylgja þeim (grein 3.4).

  4. Ákvæði um stafræna bankaþjónustu í netbanka, appi og þjónustugátt færð undir kafla um stafrænar lausnir (grein 3.5).

  5. Bætt er við kafla um samkomulag um samskipti. Tekið fram að viðskiptavinur ber ábyrgð á að samskiptaupplýsingar viðskiptavinar séu ávallt rétt skráðar hjá bankanum í stafrænum lausnum (grein 3.6).

  6. Útskýring á heimildum ófjárráða einstaklinga og réttindi og skyldur forsjáraðila skýrð (grein 3.8).

  7. Ákvæði um umboð eru uppfærð hvað varðar kröfu um skýrleika umboða og breytingar og höfnun viðskipta á grundvelli umboðs (grein 3.9).

  8. Sett inn ákvæði um tengingu greiðslukorts við greiðslulausnir þriðja aðila (grein 5.6).

  9. Leiðbeiningar og reglur um endurkröfur útskýrðar (grein 5.7).

  10. Kveðið er á um að uppsögn samnings um greiðslureikning skv. lögum um greiðslureikninga fari eftir ákvæðum þeirra laga og heimildir bankans til að segja upp viðskiptasambandi skýrðar (grein 9).

Hér er hægt að nálgast nýju skilmálana:

Almennir viðskiptaskilmálar Arion banka

Nýju skilmálarnir koma í stað eftirfarandi skilmála:

Almennir viðskiptaskilmálar

Almennir skilmálar innlánsreikninga

Debetkortaskilmálar

Kreditkortaskilmálar

Netbankaskilmálar

App skilmálar

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira