16.06.2026

Arion banki og Vörður semja við Knatt­spyrnu­deild Kefla­vík­ur

Arion banki og Vörður hafa undirritað samstarfssamning við knattspyrnudeild Keflavíkur. Með samningnum vill Arion styðja við öflugt íþróttastarf á Suðurnesjum, en Arion banki og Vörður opnuðu nýlega nýtt útibú á Aðaltorgi í Reykjanesbæ þann 5. maí síðastliðinn.

Samningurinn felur í sér að merki Arion banka verður sýnilegt á búningum meistaraflokka Keflavíkur auk þess sem bæði Arion banki og Vörður verða með merkingar á knattspyrnuvelli félagsins.

„Við hlökkum til þess að hefja samstarf við Knattspyrnudeild Keflavíkur og vera sýnilegri þátttakendur í öflugu samfélagi á Suðurnesjum,“ segir Einar Hannesson, svæðisstjóri einstaklinga í útibúi Arion banka.

Böðvar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur segir samninginn mikilvægan fyrir starf deildarinnar. „Stuðningur sem þessi skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi uppbyggingu og metnað í íþróttastarfinu.“

Karlalið Keflavíkur vann sér sæti í Bestu deildinni á síðasta tímabili og keppir því meðal efstu liða landsins í sumar. Kvennaliðið leikur í Lengjudeildinni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira