07.05.2026

Arion banki styður við nýj­an kafla í sögu Fenris Creati­ons (áður CCP Games)

Arion banki var fjárhagslegur ráðgjafi Fenris Creations, áður CCP Games, í tengslum við kaup núverandi stjórnenda og fjárfesta á félaginu frá suðurkóreska leikjafyrirtækinu Pearl Abyss. Viðskiptin marka nýjan kafla í sögu eins þekktasta tæknifyrirtækis Íslands og fela í sér að félagið verður á ný undir íslenskri forystu.

Fenris Creations, sem um árabil hefur starfað undir nafninu CCP Games, er best þekkt fyrir þróun og rekstur tölvuleiksins EVE Online. Félagið var stofnað í Reykjavík árið 1997 og hefur frá útgáfu EVE Online árið 2003 byggt upp alþjóðlegt vörumerki á sviði fjölspilunarleikja, leikmannadrifinna hagkerfa og langlífra stafræna heima.

Kaupverð viðskiptanna er samtals 120 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 15 milljarða króna. Pearl Abyss keypti CCP árið 2018, en með viðskiptunum færist eignarhald félagsins til stjórnendateymis Fenris Creations og hóps langtímafjárfesta.

Samhliða eigendaskiptunum hefur verið tilkynnt að félagið muni framvegis starfa undir nafninu Fenris Creations. Starfsemi félagsins verður áfram með höfuðstöðvar í Vatnsmýri í Reykjavík og starfsstöðvar félagsins í London og Shanghai verða reknar áfram með óbreyttum hætti. Samkvæmt tilkynningu félagsins fela viðskiptin ekki í sér breytingar á daglegri starfsemi, stjórnendateymi, vöruframboði eða þróunaráætlunum.

Google er meðal nýrra fjárfesta í Fenris Creations og hefur félagið jafnframt gert samning um rannsóknarsamstarf við Google DeepMind. Samstarfið mun meðal annars byggja á notkun EVE-heimsins sem flókins, leikmannadrifins rannsóknarumhverfis fyrir þróun og prófanir gervigreindarlíkana, meðal annars á sviði langtímaáætlanagerðar, minnis og sílærdóms.

Það er afar ánægjulegt fyrir Arion banka að hafa tekið þátt í þessu mikilvæga verkefni fyrir íslenskt atvinnulíf og tæknigeirann. Fenris Creations er einstakt dæmi um íslenskt hugverkafyrirtæki sem hefur byggt upp sterka alþjóðlega stöðu á mjög samkeppnishörðum markaði. Viðskiptin endurspegla styrk félagsins, reynslu stjórnendateymisins og þá trú sem innlendir og erlendir fjárfestar hafa á stjórnendum félagsins og framtíð EVE-heimsins

Fenris Creations hefur greint frá því að félagið nú sé að hefja nýtt vaxtarskeið sem byggir á sterkum rekstrarlegum meðbyr. EVE Online átti einn sinn sterkasta ársfjórðung í yfir 20 ára sögu leiksins á fjórða ársfjórðungi 2025 og félagið hefur jafnframt tilkynnt að tveir nýir leikir séu í þróun, EVE Vanguard og EVE Frontier.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira