02.11.2026
Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna
Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann.
Við hjá Arion banka og Verði erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.
Í ár höfum við ákveðið að leggja þrjár milljónir króna til frekari uppbyggingar Reykjalundar í nafni framúrskarandi fyrirtækja.
Reykjalundur er stærsta endurhæfingarmiðstöð landsins og gegnir lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi. Þar njóta á annað þúsund einstaklingar endurhæfingar á hverju ári með það að markmiði að endurheimta heilsu, færni og starfsgetu eftir veikindi eða áföll. Húsnæðið er hins vegar víða komið til ára sinna og mikil þörf er á uppbyggingu og endurbótum til að tryggja að starfsemin geti áfram sinnt mikilvægu hlutverki sínu.
Framlagið verður nýtt til uppbyggingarverkefna á Reykjalundi, en Hollvinir Reykjalundar stóðu nýlega, ásamt RÚV, fyrir landssöfnun til stuðnings verkefninu. Meðal annars er safnað fyrir endurbótum og endurbyggingu á aðstöðu sem nýtist sjúklingum og starfsfólki daglega.
„Framúrskarandi fyrirtæki skapa verðmæti fyrir allt samfélagið á hverjum einasta degi. Okkur finnst því viðeigandi að viðurkenna árangur þeirra með því að styðja málefni sem skipta samfélagið okkar máli. Starfsemi Reykjalundar hefur ómetanlegt gildi fyrir einstaklinga, fjölskyldur og þjóðarbúið í heild og við erum stolt af því að leggja þessu verkefni lið,“ segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka.
Við óskum öllum þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu Creditinfo í ár innilega til hamingju með árangurinn. Um leið þökkum við starfsfólki Reykjalundar fyrir framlag sitt í áranna rás.