13.09.2018

Arion banki varar við svika­póstum

Að undanförnu hefur orðið vart við tilraunir óprúttinna aðila til að komast yfir fjárhagsupplýsingar neytenda. Dæmi eru um að fólk hafi fengið póst sem lítur út fyrir að vera frá Netflix en er í raun frá aðilum sem vilja komast yfir greiðsluupplýsingar fólks.

Við hjá Arion banka teljum fulla ástæðu til að vara viðskiptavini okkar eindregið við tölvupóstum sem þessum enda um að ræða þekkta aðferð til að blekkja fólk. Af þessum sökum viljum við biðja viðskiptavini okkar að hafa eftirfarandi í huga:

  • Ekki opna hlekki í tölvupóstum sem þú kannast ekki við. Með því að láta músina hvíla yfir hlekkjum (e. hover) getur þú kannað hvort vefslóðin vísar á þann stað sem þú býst við.

  • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp öryggisnúmer sem sent er í farsíma frá VISA eða Mastercard þegar boð um endurgreiðslu berast. Slík öryggisnúmer eru eingöngu notuð til að staðfesta kaup á netinu.

  • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp þriggja stafa öryggisnúmer sem er aftan á kortunum þegar um endurgreiðslur er að ræða.

  • Aldrei gefa upp PIN númer greiðslukortsins þíns til annars aðila, hvort sem er í síma, tölvupósti eða á vefsíðu.

  • Korthafar sem gefa upp allar öryggisupplýsingar í tengslum við kortið til rangra aðila geta átt á hættu að bera sjálfir hugsanlegt tjón.

  • Gefðu aldrei upp lykilorð netbankans þíns í tölvupósti og ekki skrá það inn á öðrum vefsíðum en sjálfum netbankanum.

  • Varastu pósta á lélegri íslensku. Erlend fyrirtæki senda venjulega allt á ensku.

Nánar má lesa um öryggi við notkun greiðslukorta hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira