16.06.2020

Aukið vægi fjar­vinnu hjá Arion banka

Síðustu vikur og mánuði hefur reynt á sveigjanleika í þjónustu og starfsemi banka. Þegar mest á reyndi störfuðu um 80% starfsfólks Arion banka heima, útibú voru með skertan opnunartíma og viðskiptavinir á öllum aldri nýttu sér stafrænar lausnir í enn ríkara mæli en áður. Áhersla undanfarinna ára á þróun þægilegra stafrænna lausna eins og Arion appsins og snertilausra greiðslumáta kom öllum til góða.

Viðskiptavinir tóku þessum nauðsynlegu breytingum á þjónustu bankans vel og fjarvinna starfsfólks gekk vonum framar. Á þessari reynslu ætlum við byggja. Fjarvinna og fjarfundir, sem eru afar skilvirk leið til fundarhalda, gengu í raun það vel að bankinn hefur flutt störf út á land sem áður var talið að þyrfti að sinna í höfuðstöðvunum. Einnig var þróun ýmissa lausna flýtt, t.a.m. rafrænni undirritun einstaklinga og fyrirtækja, með það að markmiði að auka enn frekar hagræði og þægindi viðskiptavina bankans.

Í ljósi þessarar jákvæðu reynslu af fjarvinnu býðst starfsfólki Arion banka að vinna heima einn dag í viku svo framarlega sem það hentar þeim verkefnum sem það sinnir. Þetta er liður í að bjóða upp á aukinn sveigjanleika í starfi og í samræmi við mannauðsstefnu bankans þar sem lögð er áhersla á jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Það er ekki síður mikilvægt að með fjarvinnu sparast sá verðmæti tími sem það tekur starfsfólk að fara í og úr vinnu og dregið er úr umferð á háanna tíma. Jafnframt er dregið úr útblæstri vegna ferða starfsfólks sem er í samræmi við stefnu Arion banka í umhverfis- og loftsmálum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira