12.05.2021

Breytt þjónusta í Kringl­unni

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir bankaþjónustu breyst hratt og sækja viðskiptavinir okkar í auknum mæli í stafræna þjónustu. Samhliða þessu hefur Arion banki þróað útibúanet bankans til að mæta breyttri eftirspurn. Nú í sumar er komið að afgreiðslu okkar í Kringlunni og munum við flytja starfsemi okkar á nýjan stað föstudaginn 4. júní.

Við munum minnka og einfalda aðstöðuna í Kringlunni en bjóða áfram aðgengi að alhliða hraðbönkum þar sem hægt verður að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga, enduropna PIN númer, millifæra og taka út gjaldeyri.

Ný staðsetning hraðbanka verður við þjónustuborð Kringlunnar við innganginn þar sem World Class og Sambíóin eru og verða hraðbankarnir með lengri opnunartíma en nú.

Fjölbreytni í þjónustu

Við leitum stöðugt leiða til að bæta þjónustu okkar og gera hana þægilegri og aðgengilegri. Hér að neðan eru upplýsingar um nokkrar af okkar vinsælustu þjónustuleiðum:

  • Öll helsta bankaþjónusta er í boði í Arion appinu og netbankanum.

  • Þjónustuverið 444 7000 er opið virka daga frá 9-16.

  • Sendu okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is.

  • Í netspjallinu á arionbanki.is eru fyrirspurnir afgreiddar hratt og örugglega.

  • Bankinn til þín - á fjarfundi, sjá nánar hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira