16.04.2026

Er­lendar sér­hæfð­ar fjár­festingar

Í nýrri fræðslugrein á vef Arion, fara Ásgeir Bragason og Halldór Grétarsson, sjóðstjórar í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir erlendar sérhæfðar fjárfestingar Lífeyrisauka.

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar hafa á síðustu árum orðið sífellt mikilvægari þáttur í eignastýringu séreignarsjóða.

Sem langtímafjárfestir hefur séreignarsjóður bæði svigrúm og skyldu til að byggja upp vel dreift eignasafn sem skilar stöðugri raunávöxtun til langs tíma. Í því samhengi gegna sérhæfðar óskráðar fjárfestingar mikilvægu hlutverki, þar sem ávöxtun þeirra byggir á öðrum drifkröftum en hefðbundinna skráðra eigna og tengist síður skammtímasveiflum á mörkuðum.

Þessi eignaflokkur býður upp á tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegri verðmætasköpun, meðal annars í gegnum rekstrarumbætur fyrirtækja, verkefnum sem stuðla að þróun og styrkingu innviða og sérhæfðum fjármögnunarleiðum. Eðlisþættir þeirra, þar á meðal langur líftími, takmarkaður seljanleiki og verðmætasköpun sem þróast yfir líftímann og kemur að stærstum hluta fram á lokastigum sjóðanna, henta vel fjárfestum sem geta nýtt sér lengri tíma til að hámarka ávöxtun. Með markvissri uppbyggingu og dreifingu milli ólíkra fjárfestinga geta slíkar fjárfestingar styrkt heildarsamsetningu eignasafnsins og stuðlað að betra jafnvægi og ávöxtun til framtíðar.

Greinina í heild má lesa hér:
Erlendar sérhæfðar fjárfestingar

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira