24.06.2025

Fjöl­breyttari al­þjóð­legir fjár­festingar­kostir

Arion banki lauk á dögunum formlega kaupum á ráðgjafafyrirtækinu Arngrimsson Advisors og er þjónusta félagsins orðin hluti af þjónustuframboði bankans. Arngrimsson Advisors hefur sinnt eignastýringarráðgjöf með áherslu á erlenda fagfjárfestasjóði og sérhæfðar fjárfestingar frá árinu 2013. Viðskiptavinir Arion munu þannig njóta góðs af þeim alþjóðlegu tengslum og þeirri viðamiklu reynslu á sviði fjárfestinga fyrir einstaklinga, lífeyrissjóði, tryggingafélög og fjárfestingarfélög sem félagið hefur byggt upp.

Í samstarfi við erlend fjármálafyrirtæki eins og JP Morgan Asset Management, Fidelity International og State Street Global Advisors hefur Arion banki boðið viðskiptavinum sínum að fjárfesta í fjölbreyttum alþjóðlegum sjóðum. En nú fjölgar þeim valkostum sem viðskiptavinum stendur til boða, sérstaklega þegar kemur að fjárfestingum í erlendum sérhæfðum sjóðum, meðal annars í stýringu hjá Carlyle, AlpInvest, LCN og J.Saffra Sarasin, sem margir hverjir eiga sér langa og farsæla sögu meðal fagfjárfesta hér á landi.

Arngrimsson Advisors var stofnað í London í janúar 2013 af Sigurði Arngrímssyni sem starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Morgan Stanley í 16 ár og þar áður hjá Kaupþingi. Bjarni Brynjólfsson, forstjóri félagsins, gekk til liðs við fyrirtækið síðar á árinu 2013 eftir að hafa byggt upp viðamikla reynslu á sviði fjárfestinga fyrir lífeyrissjóði, tryggingafélög og fjárfestingarfélög.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar formlega var gengið frá kaupum Arion banka á Arngrimsson Advisors.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira