18.12.2025

Gaml­árs­dag­ur ekki lengur banka­dag­ur

Samkvæmt ákvörðun Seðlabankans verður 31. desember ekki lengur bankadagur. Þetta hefur áhrif á fyrirtæki, stofnanir og aðra sem gefa út kröfur, greiða laun og framkvæma aðrar greiðslur sem hér segir:

  • Þær kröfur, sem eiga að greiðast á árinu 2025, þurfa að hafa eindaga í síðasta lagi þriðjudaginn 30. desember.

  • Klára þarf allar greiðslur, sem tengjast árinu 2025, fyrir lok dags 30. desember.

  • Stórgreiðslukerfið verður lokað þann 31. desember.

  • Þar sem 31. desember verður ekki bankadagur munu allar greiðslur þann dag bókast á 2. janúar 2026.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu Seðlabanka Íslands:
Reglur um breytingu á reglum um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands nr. 1030/2020.

Þjónustuver og útibú Arion banka verða lokuð þann 31. desember en við tökum fram að netbanki og Arion appið verða vitaskuld aðgengileg rétt eins og alla aðra daga ársins.

Með hátíðarkveðjum,
starfsfólk Arion

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira