05.05.2026

Kon­ur fjár­festum á Ice­land Innovati­on Week

Þann 30. apríl síðastliðinn hélt Arion banki viðburð í samstarfi við IceBAN undir yfirskriftinni Konur fjárfestum x IceBAN: Að leiða fjármálabyltingu. Viðburðurinn var liður í dagskrá Iceland Innovation Week sem fram fór dagana 27.-30. apríl. Þess má geta að Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, opnaði nýsköpunarvikuna ásamt Skúla Mogensen, athafnamanni, í Hvammsvík þann 27. apríl.

Þetta er í annað skipti sem Arion banki tekur virkan þátt í vikunni með því að standa fyrir sérstökum viðburði, en Iceland Innovation Week er árleg nýsköpunarhátíð sem haldin er í Reykjavík og leiðir saman frumkvöðla, sprotafyrirtæki, fjárfesta, fyrirtæki og opinbera aðila. Fram fara fjölbreyttir viðburðir, fyrirlestrar og vinnustofur, auk þess sem þátttakendum gefst kostur á að mynda ný tengsl og efla gömul.

Að þessu sinni vörpuðum við kastljósinu á Konur fjárfestum langtímaátakið okkar.

Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri, reið á vaðið og sagði áheyrendum frá Konur fjárfestum og þeim mikla árangri sem náðst hefur síðan átakinu var ýtt úr vör.

Næst á svið var Svava Björk Ólafsdóttir, forstjóri og stofnandi IceBAN, sem rýndi í íslenskt fjárfestingaumhverfi og varpaði ljósi á það sem gerir það bæði sérstakt og krökkt af tækifærum. Svava Björk kynnti einnig IceBAN og sýndi fram á hvernig englafjárfestingar geta veitt konum raunhæfa leið til að taka þátt í atvinnulífinu og móta framtíð nýsköpunar á Íslandi.

Að lokum fóru fram pallborðsumræður. Þar mættust þær Þórey Vilhjálmsdóttir Proppe, stofnandi Öldu, Linda Björk Ólafsdóttir, englafjárfestirinn sem studdi Þóreyju, og Ásthildur Otharsdóttir, leiðtogi í áhættufjárfestingum sem fylgdi þeirri fjárfestingu eftir. Saman veltu þær fyrir sér fjárfestingarferðalaginu frá ólíkum sjónarhornum og deildu sýn sinni á tækifæri, áskoranir og þann raunveruleika sem konur standa frammi fyrir í sprotaumhverfinu.

Við þökkum fyrir okkur og hlökkum til að fylgjast áfram með nýsköpunarvikunni á næstu árum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira