05.05.2026

Met­þátt­taka í fjár­festingar­keppni Arion banka og Dyngju

Í mars síðastliðnum héldum við árlegu fjárfestingarkeppnina okkar í samstarfi við Dyngju. Að þessu sinni fór keppnin fram undir formerkjum „Konur fjárfestum“ átaksins okkar og var einungis ætluð konum.

Skemmst er frá því að segja að slegið var þátttökumet. Áhuginn er greinilega gríðarlegur en samtals tóku 1720 konur þátt í fjárfestingarkeppninni. Allar byrjuðu þær með 10 milljónir króna og fengu mánuð til að ávaxta þá peninga með kaupum á hlutabréfum og í sjóðum.

Markaðurinn var ekki auðveldur á þessu tímabili og reyndist mörgum róðurinn ansi þungur. Einn keppandi bar höfuð og herðar yfir aðra og var það Alexandra Chernyshova, með +25,38% ávöxtun. Í öðru sæti var Máney Alda Rúnarsdóttir með +8,67% ávöxtun og í því þriðja var Ingibjörg Leópoldsdóttir með +7,86% ávöxtun. Á annað hundrað konur skiluðu hagnaði af fjárfestingum sínum og stóðu sig því með mikilli prýði.

Þetta er í fimmta skipti sem við höldum fjárfestingarkeppni af þessum toga í gegnum Dyngju appið. Við erum virkilega ánægð með gjöfult samstarf við Dyngju og hlökkum til að endurtaka leikinn. Um leið óskum við sigurvegurunum hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira