10.03.2026

Nýtt fram­boð íbúða­lána Arion banka

Arion banki býður á ný óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum. Standa viðskiptavinum nú þrír meginvalkostir til boða þegar kemur að nýjum íbúðalánum:

Óverðtryggð íbúðalán með breytilega vexti – lánstími allt að 40 ár
Viðskiptavinum býðst að taka íbúðalán með óverðtryggðum breytilegum vöxtum. Lánstími getur verið allt að 40 ár. Íbúðalán með breytilega vexti bera ekki uppgreiðslugjald.

Óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára – lánstími allt að 40 ár
Viðskiptavinum býðst að taka íbúðalán með óverðtryggðum vöxtum sem eru fastir til þriggja ára. Lánstími getur verið allt að 40 ár. Að fastvaxtatímabilinu loknu taka við þeir breytilegu vextir bankans sem í boði eru á þeim tíma. Lánin eru með uppgreiðslugjaldi á fastvaxtatímabilinu en eftir að breytilegir vextir taka við er ekki uppgreiðslugjald.

Verðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára í senn – lánstími allt að 30 ár
Viðskiptavinum býðst að taka íbúðalán með verðtryggðum föstum vöxtum til þriggja ára í senn. Lánstími getur verið allt að 30 ár. Að loknu hverju þriggja ára tímabili hefur bankinn heimild til að endurskoða vexti og festa á ný til næstu þriggja ára. Síðustu 90 daga hvers fastvaxtatímabils ber lánið ekki uppgreiðslugjald.

Kynntu þér Greiðslufestu

Jafnframt býður Arion banki viðskiptavinum sem kjósa óverðtryggð lán en vilja lækka greiðslubyrði upp á Greiðslufestu.

Þegar greiðslufesta er sett á óverðtryggt lán þá er föst fjárhæð greidd í tólf mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins. Mismunurinn er lagður við höfuðstól lánsins, sem leiðir til hækkunar lánsins. Hægt er að velja hvort fasta mánaðarlega greiðslan miðist við 1, 2, 3 eða 4% lægri vexti en lánið ber í dag.

Nánar má lesa um Greiðslufestu hér.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um íbúðalán Arion banka má finna hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira