14.10.2026
Óttalausa stúlkan kemur til Íslands
Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.
Óttalausa stúlkan verður öllum til sýnis í Borgartúni 19 föstudaginn 16. október milli klukkan 9 og 12. Heitt verður á könnunni og boðið upp á nýsteiktar kleinur. Við hvetjum öll til að koma og líta styttuna eigin augum – og smella jafnvel nokkrum myndum af sér með henni.
Tákn hugrekkis og seiglu
Styttan af óttalausu stúlkunni var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017. Styttan vakti fljótt heimsathygli þar sem hún stóð augliti til auglitis við nautið fræga í árásarhamnum (e. Charging Bull) á Wall Street, og hefur á síðustu árum orðið eitt þekktasta tákn heims fyrir styrk, hugrekki og leiðtogahæfileika kvenna.
Í dag stendur Óttalausa stúlkan fyrir framan Kauphöllina í New York þar sem þúsundir gesta sjá hana daglega. Mörg staldra þar við, taka myndir af sér með styttunni og endurskapa hina þekktu stellingu hennar, bera höfuðið hátt um leið og þau tylla höndum á mjaðmir.
Boðskapur styttunnar er að hvetja fólk til að mæta framtíðinni af hugrekki og hafa trú á eigin getu.
Viðurkenning á árangri Konur fjárfestum
Koma Óttalausu stúlkunnar til Íslands felur í sér viðurkenningu á þeim árangri sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaki Arion banka á síðustu tveimur og hálfu ári. Markmiðið með átakinu er að auka þátttöku kvenna á fjármálamarkaði og efla fjárhagslegt sjálfstæði þeirra.
Fleiri en 10.000 konur hafa nú sótt viðburði á vegum Konur fjárfestum. Þar hafa þær fengið fræðslu, innblástur og hagnýt verkfæri til að stíga sín fyrstu skref í fjárfestingum eða efla þekkingu sína enn frekar. Við hvetjum öll til að kynna sér fræðsludagskrá Konur fjárfestum í október og taka þátt í þeim viðburðum sem í boði verða.
Arnaud Bruyneel, Head of Nordics hjá State Street Investment Management:
„Við gleðjumst yfir því að boðskapur Óttalausu stúlkunnar hljóti sterkan hljómgrunn á Íslandi og teljum að árangur Konur fjárfestum sýni hvernig fræðsla og valdefling geta haft raunveruleg áhrif. Þess vegna er okkur sérstök ánægja að leyfa styttunni af Óttalausu stúlkunni að koma til Íslands.“
Átakið Konur fjárfestum er því farið að vekja athygli langt út fyrir landsteinana og orðið hluti af stærra samtali um þátttöku kvenna í efnahagslífi og fjárfestingum úti um allan heim. Styttan hefur sjaldan verið flutt milli landa og er heimsókn hennar til Íslands því mikið gleðiefni.