01.04.2020

Út­greiðsl­ur á fyrir­fram­greidd­um viðbótar­lífeyris­sparnaði

Til að útgreiðsla fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar geti átt sér stað þann 30. apríl næstkomandi þarf umsókn að hafa borist til bankans í síðasta lagi 26. apríl. Frá og með 15. maí munu greiðslur fara fram 15. hvers mánaðar og þarf umsókn að berast eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir útgreiðsludag.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér úrræðið vel, t.d. í spurt og svarað. Þá eru þeir sem ekki eru nú þegar með rafræn skilríki hvattir til að verða sér úti um þau, sjá leiðbeiningar hér.

Opnað verður fyrir rafrænar umsóknir á Mínum síðum á næstunni og verður upplýst um það þegar þar að kemur hér á vefsíðu bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira