15.06.2026

Við bú­um við al­gjör­lega nýj­an veru­leika

Netógnum fjölgar hratt og aðferðir netskúrka verða sífellt útsmognari. Gervigreindin bætir þar enn í, bæði þegar kemur að árásum og vörnum.

Þessi nýi veruleiki var tekinn til sérstakrar skoðunar á vel sóttum morgunfundi Arion banka og Syndis þann 9. júní síðastliðinn, en þar töluðu sérfræðingar fyrir fullu húsi í höfuðstöðvum Arion, Borgartúni 19. Við hjá Arion leggja okkar af mörkum til að auka þekkingu og efla vitund um netöryggi, hjá bæði einstaklingum og fyrirtækjum, og fögnum því þessari frábæru mætingu og mikla áhuga.

Netöryggi varðar okkur öll

Í opnunarávarpi sínu lagði Hákon Lennart Aakerlund, öryggisstjóri Arion banka, áherslu á að netöryggi væri ekki lengur mál sem tilheyrði eingöngu tæknideildum.

„Netöryggi snertir okkur öll – einstaklinga, fyrirtæki, fjölskyldur og samfélagið í heild,“ sagði Hákon.

Hann benti enn fremur á að gervigreind hafi breytt landslaginu verulega. Svikapóstar væru orðnir trúverðugri, falsa mætti raddir og myndir með afar sannfærandi hætti og árásir, sem áður tóku kannski vikur eða mánuði að undirbúa, væri nú hægt að setja upp á örfáum mínútum.

Dagleg áskorun innan fjármálastofnana

Stefán Skúlason, öryggissérfræðingur hjá Arion banka, fjallaði sérstaklega um netöryggi á tímum gervigreindar. Hann deildi meðal annars reynslusögum um daglegar áskoranir fjármálastofnana.

Að lokum tók David Jacoby, CSO hjá Syndis, til máls og nefndist erindi hans „Vopnastu gervigreind þér til gróða og gamans“. David hefur áratugalanga reynslu í heimi upplýsingaöryggis og er þekktur fyrir að gera flókin málefni bæði lifandi og aðgengileg. Í fyrirlestri sínum blandaði hann saman hagnýtum dæmum og innsýn í það hvernig tölvuþrjótar hugsa. Virtust fundargestir taka afar vel í málflutning hans og vonandi lærðu þeir líka eitt og annað sem nýtist þeim.

Samvinna og fræðsla lykilatriði

Tvö lykilatriði voru rauður þráður í erindum fundarins: samvinna (við þurfum öll að deila þekkingu og vinna saman þvert á geira); og fræðsla (besta vörnin er upplýst og árvökult fólk). Þetta endurspeglast í gjöfulu samstarfi Arion banka og Syndis í kringum fundinn og ýmis önnur verkefni. Sameinaðir kraftar byggja upp sterkari varnir.

Við þökkum Syndis fyrir ánægjulegan fund – og sömuleiðis öllum þeim sem hlýddu á erindin – og hlökkum til að endurtaka leikinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira