19.05.2021

Við vör­um við stuldi á korta­núm­er­um

Við vörum við svikapóstum þar sem fólk er beðið um að smella á hlekk þar sem farið er inn á falska síðu sem er látin líta út eins og síða frá póstfyrirtæki, svo sem DHL, eða greiðslusíða fjármálafyrirtækis. Þar er fólk m.a. beðið um að skrá inn kortanúmer og eru dæmi um að svikahrappar nýti sér kortaupplýsingar sem þeir fá með þessum hætti. Þurfa korthafar því að vera á varðbergi.

Dæmi um aðferð við vefveiðar:

1. 
Fölsk skilaboð
móttekin

2.
Fölsk vefsíða
út frá hlekk

3.
Upplýsingum
er stolið

4.
Upplýsingar
notaðar

  • Fölsk skilaboð móttekin: Falskur póstur eða smáskilaboð berst sem virðist vera frá heiðvirðu fyrirtæki og notandi er hvattur til að smella á hlekk.

  • Fölsk vefsíða út frá hlekk: Móttakandi smellir á hlekkinn sem leiðir hann á falska vefsíðu sem í fyrstu virðist vera traustsins verð.

  • Upplýsingum er stolið: Á fölsku vefsíðunni er beðið um viðkvæmar upplýsingar, svo sem kortnúmer, cvv númer og öryggisnúmer vegna vottunar Visa sem korthafi fær sent í SMS.

  • Upplýsingar notaðar: Á þessu sigi eru svikahrapparnir komnir með skráðar upplýsingar til að svíkja fé út af kortinu, ásamt því að vera með einkvæmt öryggisnúmer Vottun Visa til að staðfesta netfærsluna.

Ef korthafi fær SMS með öryggisnúmeri vegna vottun Visa er mikilvægt að skoða alltaf hvort upphæð, mynt og nafn seljanda í SMS stemmi við viðskiptin, því staðfesting með öryggisnúmeri á netinu jafngildir því að staðfesta viðskipti með PIN númeri.

Við mælum með að korthafar gefi sér góðan tíma til að yfirfara allar upplýsingar áður en gefin eru upp kortnúmer eða öryggisnúmer. Ef vafi liggur á réttmæti skal ekki gefa upp kortaupplýsingar heldur leita sér ráðgjafar hjá bankanum.

Ef korthafi lendir í kortasvikum er hægt að tilkynna svikin til lögreglu í netfangið cybercrime@lrh.is. Einnig er hægt að hafa samband við okkur í síma 444-7000 eða í netspjalli á vef bankans. Eins er mikilvægt að hafa strax samband við þjónustuver Arion banka til þess að láta loka kortinu til að koma í veg fyrir frekara tjón.

Eftir lokunartíma bankans er hægt að hringja í neyðarnúmer Valitors í síma 525-2000.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Arion banka þar sem fjallað er almennt um öryggismál og góð ráð til að versla á netinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira