Hvað er árangur fyrir Rafholt?

Ánægt starfsfólk
og gott orðspor

Helgi Rafnsson - framkvæmdastjóri Rafholts

Rafholt er 20 ára gamalt og hefur árum saman verið eitt stærsta fyrirtæki landsins í rafiðnaðargeiranum. Við erum verktakafyrirtæki sem sinnir að mestu framkvæmdum við stærri verkefni ásamt föstum þjónustusamningum við mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins.

Ábyrg stjórnunarstefna og flottasta starfsfólkið er það sem fær fyrirtækið til að blómstra. Það skiptir máli að halda í gott fólk og við leggjum mikið upp úr því að fólkinu okkar líði vel í vinnunni. 

Ábyrg stjórnunarstefna og flottasta starfsfólkið er það sem fær fyrirtækið til að blómstra.

Tæknibreytingar hafa verið örar undanfarna áratugi og fyrirtækið hefur þróast í takt við þarfir markaðarins. Þessi þróun kallar á aukna þekkingu hjá fólkinu okkar. Við störfum við hefðbundnar raflagnir, netlagnir, ljósleiðaralagnir, hússtjórnarkerfi og loftnetsuppsetningar um allt land. Innan fyrirtækisins eru sérhæfðar deildir sem sinna afmörkuðum verkefnum en svo er einnig skörun á milli deilda sem eykur fjölhæfni og getu til úrlausna flóknustu verkefna.

Fjölbreytt starfsemi hefur reynst okkur vel; skapað ákveðinn stöðugleika í rekstrinum og jafnað út hagsveiflurnar.

Fjölbreytt starfsemi hefur reynst okkur vel; skapað ákveðinn stöðugleika í rekstrinum og jafnað út hagsveiflurnar. Ábyrg fjármálastefna hefur gert okkur kleift að fjármagna okkur með eiginfé frekar en með lánsfé. Það er ekki bara hagkvæmara heldur erum við fyrir vikið fljótari að bregðast við aðstæðum sem upp kunna að koma.

Það fylgir samfélagsleg ábyrgð því að reka fyrirtæki og að vera með hagkvæman og góðan rekstur sem skilur eitthvað eftir sig hjá nærsamfélagi og starfsfólki er lykilatriði.

Það að orðspor okkar sé gott er árangur fyrir okkur.

Það fylgir samfélagsleg ábyrgð því að reka fyrirtæki.

Það skiptir máli að halda í gott fólk og við leggjum mikið
upp úr því að fólkinu okkar líði vel í vinnunni.

Þinn árangur

Árangur getur verið alls konar. Markmið fyrirtækja eru ólík og fjölbreytt, en okkar hlutverk er að hjálpa viðskiptavinum að ná þeim árangri sem þeir stefna að. Þinn árangur er það sem vinna okkar gengur út á alla daga.

Gróska

Hugmyndin fyrir hátt í tíu árum var að byggja hús utan um nýsköpun á Íslandi. Verkefnið er ekki að leigja skrifstofurými heldur að skapa hér nýtt samfélag.

Lesa meira

Rafholt

Rafholt er 20 ára gamalt og hefur árum saman verið eitt stærsta fyrirtæki landsins í rafiðnaðargeiranum.

Lesa meira

Kvistabær

Kvistabær framleiðir trjáplöntur fyrir skógrækt og þjónustar meðal annars fyrirtæki í kolefnisjöfnun, skógræktarfélög og opinberar stofnanir.

Lesa meira

Gróðurhúsið

Gróðurhúsið er hugmyndafræði þar sem við nálgumst hótel-, verslana- og veitingaupplifun á nýjan hátt.

Lesa meira

Te & Kaffi

Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum upp á besta kaffi sem völ er á, á sem umhverfisvænastan hátt. Þar erum við nýlega búin að ná tveimur stórum áföngum. 

Lesa meira

Controlant

Okkar hlutverk hjá Controlant er að hjálpa alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum að koma sínum lyfjum/vörum á réttan stað og í réttu ástandi.

Lesa meira