
Að skapa samfélag um nýsköpun á Íslandi
Vera Dögg Antonsdóttir - framkvæmdastjóri Grósku

Vera Dögg Antonsdóttir - framkvæmdastjóri Grósku
Hugmyndin fyrir hátt í tíu árum var að byggja hús utan um nýsköpun á Íslandi. Verkefnið er ekki að leigja skrifstofurými heldur að skapa hér nýtt samfélag. Þetta er því metnaðarfull framkvæmd. Hér er gott að vera og flæði milli rýma er mikið.
Nú er Gróska risin, smám saman að fyllast af fólki og við sjáum samfélagið okkar myndast dag frá degi.
Við viljum að íbúar Grósku tengist háskólum og auðgi háskólasvæðið í heild. Hér er Mýrin frumkvöðlasetur á vegum Vísindagarða, Gróðurhúsið sem býður upp á samnýtt leigurými, mathöll, líkamsræktarstöð, CCP, Íslandsstofa, tölvunarfræði HÍ, auglýsingastofa - allt aðilar sem geta verið stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki en draga líka að sér fólk og auka mannlífið í húsinu.


Í Gróðurhúsinu á annarri hæð eru 40 fyrirtæki í dag og verða um 70-80 þegar framkvæmdum lýkur. Þetta eru fyrirtæki sem eru komin með einhverjar tekjur eða með fjármögnun. Í Mýrinni sem er frumkvöðlasetur á vegum Vísindagarða á fyrstu hæð eru hátt í 50 aðilar með léttari aðstöðu ásamt Klak, Auðnu tæknitorg, Snjallræði sem er unnið í samstarfi við MIT, Hönnunarmiðstöð Íslands og fleiri. Ef allir sitja á skrifstofunni sinni eru 700 manns í húsinu og verða um 900 þegar Gróska er fullkláruð.
Eitt af því sem við höfum mikinn metnað fyrir er að nýsköpunarfyrirtækin nái tengingu við háskólasamfélagið og fyrirtæki í rekstri. Þanngi eru fyrirtæki í húsinu byrjuð að eiga samtal við HÍ um að námskrá og hvernig hún getur þjónað þörfum þessa geira enn betur.
Okkar verkefni í dag er að vinna með fólkinu í húsinu, aðstoða þau að vaxa og dafna og efla Grósku sem vettvang þar sem fyrirtækin styðja hvort annað, halda viðburði, eiga samskipti sín á milli og deila þekkingu og starfskröftum. Við sjáum því Grósku sem stuðningsnet fyrir frumkvöðla.
En auðvitað skapar hvert fyrirtæki sinn árangur og sína vegferð. Árangur þeirra er undir þeim sjálfum kominn. Fyrirtækin eiga að vaxa og dafna. 13 fyrirtæki hafa tvöfaldað eða þrefaldað starfsemi sína eftir að þau fluttu í Grósku sem er mjög gaman. Þau eiga að verða of stór og sprengja húsnæðið utan af sér. Það hlýtur að vera markmiðið.
Vera Dögg Antonsdóttir - framkvæmdastjóri Grósku

Árangur getur verið alls konar. Markmið fyrirtækja eru ólík og fjölbreytt, en okkar hlutverk er að hjálpa viðskiptavinum að ná þeim árangri sem þeir stefna að