
Hönnunardrifið fatamerki í 20 ár
Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson - stofnendur og eigendur.

Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson - stofnendur og eigendur.
Okkur langaði að búa til hönnunardrifið fatamerki. Innblásturinn kemur úr nærumhverfinu, íslenskri náttúru og menningu með smá dassi af sveitarómantík. Við tölum stundum um að við staðsetjum okkur á krossgötum þar sem ólíkir heimar mætast – fortíð mætir nútíð, hið íslenska mætir hinu alþjóðlega og sveitin mætir borginni. Okkur þykir spennandi að bræða saman þessa heima. Það er okkar leið til að skapa eitthvað nýtt.
Við höfum haldið fast í þá hugmynd og ég held að þess vegna séum við með mikið af fastakúnnum sem koma aftur og aftur því að þeim líður vel í verslunum okkar og fíla fötin, náttúruleg og umhverfisvæn hráefni, sniðin og konseptið.


Við erum bæði listmenntuð og höfðum litla þekkingu á rekstri áður en við fengum þessa flugu í höfuðið. Við byrjuðum með tvær hendur tómar en fullt af hugmyndum.
Við vildum gera okkar eigin vörur og okkur langaði líka að geta boðið upp á önnur vörumerki sem okkur finnast fanga sama anda.
Síðan eru allt í einu komin 20 ár og við höfum þurft að læra í hverju skrefi – vaxa passlega mikið og hæfilega hratt í gegnum alls konar hæðir og lægðir. Einhvern veginn hefur allt blessast. Við höfum verið svo lánsöm að vinna með frábæru fólki í áranna rás og það er gefandi að fjöldi fólks er með beina og óbeina atvinnu í kringum þetta fyrirtæki okkar.
Það er árangur fyrir okkur.

Árangur getur verið alls konar. Markmið fyrirtækja eru ólík og fjölbreytt, en okkar hlutverk er að hjálpa viðskiptavinum að ná þeim árangri sem þeir stefna að