Greiðsluþak er ný leið til að lækka tímabundið greiðslubyrðina af íbúðaláninu þínu

Þegar þú setur greiðsluþak á lánið þitt greiðir þú fasta fjárhæð í tólf mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins. Mismunurinn er lagður við höfuðstól lánsins, sem leiðir til hækkunar lánsins. Þetta mun fela í sér hærri greiðslubyrði lánsins þegar tímabili greiðsluþaks lýkur.

Fasta mánaðarlega fjárhæðin miðar við að þú greiðir 1, 2, 3 eða 4% lægri vexti en lán þitt ber í dag.

Þú sækir um hér

Er hægt að fá greiðsluþak á öll lán?

Eingöngu er hægt að sækja um greiðsluþak á óverðtryggð íbúðalán með breytilegum eða föstum vöxtum.

Ef sótt er um greiðsluþak á blandað íbúðalán fær óverðtryggði hluti lánsins eingöngu greiðsluþak, ekki verðtryggði hlutinn.  

Ef lán er að fara af föstum vöxtum yfir á breytilega vexti er hægt að sækja um greiðsluþak um leið og búið er að gefa út nýjan greiðsluseðil.

Hvaða skilyrði þarf ég að uppfylla
til að geta fengið greiðsluþak?

Íbúðalánið þitt þarf að vera í skilum og þú mátt ekki hafa verið í vanskilum á síðustu 6 mánuðum. Jafnframt má heildarskuldsetning fasteignar að hámarki vera 70% af verðmæti eignar.

  • Tekið er mið af kaupverði ef kaupsamningur eignarinnar var undirritaður innan 12 mánaða, annars er tekið mið af fasteignamati.

Hvernig sæki ég um greiðsluþak?

Þú sækir um greiðsluþak rafrænt í síðasta lagi tveimur dögum fyrir mánaðamótin sem þú vilt að tímabil greiðsluþaks hefjist. Þú þarft síðan að undirrita skjölin fyrir 1. dag næsta mánaðar.

  • Innheimt er afgreiðslugjald kr. 9.995 fyrir hvert lán sem leggst ofan á fyrstu afborgun eftir að greiðsluþak hefst.
  • Við skjalavinnslu þarf bankinn að taka út veðbókarvottorð eignarinnar.
  • Veðbókarvottorð er sótt með rafrænum hætti til sýslumannsembættis og er kostnaður við það innifalinn í afgreiðslugjaldinu.

Bjóðið þið upp á greiðsluþak fyrir
viðskiptavini annarra banka/lífeyrissjóða?

Greiðsluþak er eingöngu í boði fyrir viðskiptavini sem eru með íbúðalán hjá Arion banka. 

Við hvetjum þig til þess að hafa samband við okkur á ibudalan@arionbanki.is eða í gegnum netspjallið á vefsíðu okkar ef einhverjar spurningar vakna.

Kynntu þér greiðsluþak

Til að koma til móts við breytt landslag í efnahagsmálum á Íslandi bjóðum við nú upp á tímabundið greiðsluþak á íbúðalánum.

Lesa grein

Hér getur þú reiknað greiðsluþakið þitt


Hér þarf að setja inn fjárhæðir af nýjasta greiðsluseðli láns:
Greiðsla:
Ég vil lækka vextina á tímabili greiðsluþaks um:

Niðurstöður
Áætluð greiðslubyrði á tímabili greiðsluþaks m.v. vexti lánsins:

Umsókn um greiðsluþak íbúðalána

Veldu vaxtalækkun *