Arion greining
Arion greining fylgist með íslenskum markaði og tekur saman og greinir upplýsingar sem eru reglulega gefnar út á aðgengilegu skýrsluformi.

Arion greining fylgist með íslenskum markaði og tekur saman og greinir upplýsingar sem eru reglulega gefnar út á aðgengilegu skýrsluformi.

Við fylgjumst með þróun á íslenskum fjármálamarkaði, efnahagslífi og atvinnugreinum, og birtum reglulega greiningar í skýrsluformi.
Þessar skýrslur eru aðgengilegar viðskiptavinum bankans.
Markaðsupplýsingar um hlutabréf, skuldabréf og gjaldeyri.
Efnahagsskýrslur um hagvöxt, verðbólgu, atvinnuleysi, vexti o.fl.
Atvinnugreina- og fyrirtækjagreiningar.
Í skýrslu um húsnæðismarkaðinn er farið yfir þróun markaðarins og þá drifkrafta sem hafa vegið þyngst.
Þá er spáð í spilin og fjallað um mögulega áhrifaþætti fram á veginn.
Í skýrslu um sjávarútveginn vörpum við ljósi á það hvernig kvótakerfið hefur skapað þá umgörð sem gerði hérlendum sjávarútvegsfyrirtækjum kleift að komast í fararbrodd á heimsvísu.
Við skoðum enn fremur núverandi rekstrarskilyrði í greininni og veltum fyrir okkur áhrifum nýs fiskveiðigjalds. Þá köfum við ofan í hraðan vöxt fiskeldis á síðustu árum og stórtækar áætlanir á því sviði.
Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að þjóðarskútan haldi til hafs á ný eftir samdrátt síðasta árs.
Innlend eftirspurn, með einkaneysluna í broddi fylkingar, hefur verið atkvæðameiri en áður var reiknað með og mun halda sínu hlutverki sem driffjöður hagvaxtar.
Arion banki hefur gefið út stutta og aðgengilega skýrslu með samantekt á þeim árangri sem náðist á fyrsta ári átaksins Konur fjárfestum.
Arion banki hefur gefur út ítarlega skýrslu um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi.
Þann 6. nóvember hélt Arion banki morgunfund um horfurnar á íslenskum húsnæðismarkaði. Fundurinn fór fram í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, undir yfirskriftinni „Fasteignamarkaðurinn: Áskoranir & horfur“. Sérfræðingar bæði innan og utan bankans, ásamt kjörnum fulltrúum stærstu sveitarfélaganna, greindu stöðuna í fróðlegum erindum og pallborðsumræðum. Sama dag gaf bankinn út yfirgripsmikla skýrslu þar sem ástandið á íslenskum húsnæðismarkaði er krufið og spáð í þróunina á næstu árum. Hér fyrir neðan má lesa stuttar samantektir á inntaki hvers fyrirlesturs og nálgast glærusýningar frá fundinum.
Arion banki kynnti nýja hagspá, auk sérstakrar skýrslu um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi, á vel sóttum viðburði í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, þriðjudaginn 30. september síðastliðinn.
Arion banki hefur gefið út Áhrifa- og úthlutunarskýrslu fyrir græna fjármögnun bankans árið 2023. Í skýrslunni er gerð grein fyrir stöðu úthlutaðra fjármuna sem aflað hefur verið með grænum skuldabréfaútgáfum og innlánum og byggja á grænni fjármálaumgjörð bankans.



