02.10.2025

Arion banki kynnir hagspá og stóra skýrslu um sjáv­ar­út­veg­inn

Arion banki kynnti nýja hagspá, auk sérstakrar skýrslu um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi, á vel sóttum viðburði í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19, þriðjudaginn 30. september síðastliðinn.

Djúp greining á íslenskum efnhag næstu þrjú árin

Dagskráin hófst með stuttu opnunarávarpi Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Hann vék að því að hagspáin væri birt daginn eftir að tilkynnt hafði verið um gjaldþrot flugfélagsins Play – og hefði aðalhagfræðingur bankans, Erna Björg Sverrisdóttir, því þurft að gera breytingar á erindi sínu á elleftu stundu.

Erna Björg fylgdi á eftir bankastjóra og hélt aðgengilegt erindi um hagspána. Fyrst fjallaði hún í stuttu máli um brotthvarf Play af flugmarkaðnum. Sagðist hún telja að áhrifin yrðu takmörkuð; hlutdeild Play í komum erlendra ferðamanna til Íslands hefði verið komin undir tíu prósent við fall félagsins. Til samanburðar væri hlutdeild Icelandair um fjörutíu prósent. Áhrifin yrðu þó alltaf einhver á flugframboð og atvinnuleysi.

Hér má lesa skýrsluna í heild sinni, en þar er fjallað um efnahagshorfur landsins næstu þrjú árin, 2025-2028.

Íslenskur sjávarútvegur sterkur þrátt fyrir stórar áskoranir

Næst steig á stokk Kári S Friðriksson og kynnti nýja skýrslu Arion greiningar um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi. Í úttektinni kemur fram að íslenskur sjávarútvegur er sannarlega í fremstu röð, bæði hvað varðar ferskleika og gæði afurða, skilvirkni og tækni í veiðum og vinnslu, nýtingu afurða og sjálfbærni. Þá sé mikil gróska og nýsköpun í greininni hér á landi., Kári tók þó fram að ýmsar áskoranir væru einnig fram undan, meðal annars varðandi breytt loftslagsskilyrði og hlýnun sjávar, erfiðari rekstrarskilyrði fiskvinnslna og fleira.

Smelltu hér til að lesa sjávarútvegsskýrsluna.

Pallborðsumræður

Hjalti Már Hauksson, í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, rak botninn í vel heppnaðan viðburð með því að stýra líflegu pallborði. Þar mættust þau Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, Páll Snorrason, framkvæmdastjóri Eskju, Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda hf og Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.

Á milli dagskráratriða voru leikin myndbönd sem Arion framleiddi í tilefni af viðburðinum. Í einu þeirra var fólk á förnum vegi innt eftir því hvernig það upplifði efnahagsstöðuna í landinu um þessar mundir. Í hinum tveimur myndböndunum sátu svo fyrir svörum sérfræðingar og reynsluboltar í íslenskum sjávarútvegi, nánar tiltekið þau Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Rúnar Magni Jónsson, forstöðumaður sjávarútvegs og þjónustu Arion banka, Runólfur V Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur hf., Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraness og Eymar Einarsson, fyrrverandi sjómaður.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira