Premíukort
Kortið er eingöngu í boði fyrir viðskiptavini í Premíu þjónustu okkar og hentar þeim ferðast mikið, vilja ríkuleg fríðindi og vilja safna Vildarpunktum Icelandair.

Kortið er eingöngu í boði fyrir viðskiptavini í Premíu þjónustu okkar og hentar þeim ferðast mikið, vilja ríkuleg fríðindi og vilja safna Vildarpunktum Icelandair.

Sem viðskiptavinur Premíu hefur þú aðgang að sérhönnuðum greiðslukortum.
Kreditkortinu fylgja okkar bestu ferðatryggingar, golftrygging og fjöldi annarra fríðinda, eins og aðgangur að Saga Lounge og frí heimsókn í Betri stofu World Class mánaðarlega.
Auk þess safnar þú vildarpunktum Icelandair af allri verslun, innlendri sem erlendri.
Í ofanálag færð þú sérhannað Premíu debetkort.
Árlega færð þú 5.000 vildarpunkta við greiðslu árgjalds. Þú safnar síðan 12 Vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 kr. af allri verslun, bæði innanlands og utan. Til viðbótar færð þú einnig árlega 6.000 fríðindastig Icelandair við greiðslu árgjalds.
Þú færð 50.000 Vildarpunkta í gjöf frá okkur ef ársvelta er yfir 2.500.000 kr. í erlendri mynt. 1)
Kortinu fylgja okkar allra bestu ferðatryggingar og víðtækari bílaleigutryggingar. Frábær kjör fyrir fólk sem ferðast mikið.
Premía Golftrygging fylgir kortinu sem kemur sér vel ef óhöpp verða. Ef þú ferð holu í höggi áttu einnig rétt á greiðslu sem hugsuð er til þess að mæta þeim kostnaði sem hlýst af því að bjóða meðspilurum upp á veitingar að hring loknum.
Ókeypis aðgangur að Saga Lounge á Keflavíkurflugvelli þegar þú flýgur með Icelandair. Korthafar geta boðið einum gesti með sér gegn gjaldi. Sjá nánari upplýsingar um skilyrði og gjald á vefsíðu Icelandair.
Þú getur nýtt þér flýtiinnritun (Priority check-in) á Keflavíkurflugvelli þegar þú flýgur með Icelandair.
Með því að framvísa kortinu býðst þér frí heimsókn 1x í mánuði í Betri stofu World Class ásamt gesti.
Þú færð 10% afslátt af veitingum hjá Reykjavík Edition. Afslátturinn gildir á The ROOF, Lobby Bar, Tides og Tides Cafe. Aðgangur að Tölt bar sem eingöngu er opinn þeim sem eru með meðlimakort.
Bagbee sækir farangurinn heim til þín, flytur til Keflavíkurflugvallar og innritar. Sýna þarf Premíu kreditkortið við afhendingu og nafn handhafa kortsins þarf að vera á pöntuninni. Kóðinn ArionPremia virkjar afsláttinn. Virkar þegar flogið er með Icelandair eða Neos.
Þú færð 15% afslátt af bæði pakka- og dagsferðum á þyrluskíðaferðum. Að auki sér Viking Heliskiing um að sækja þig og skila á Akureyrarflugvöll, án endurgjalds. 2)
1) Með veltu í erlendri mynt er átt við notkun kortsins hjá söluaðilum og greiðslu í annarri mynt en íslenskum krónum. Ársvelta miðast við 27. desember til 26. desember næsta árs. Velta reiknast á kortareikning.
Í janúar ár hvert fær korthafi sem uppfyllir ofangreind veltuskilyrði, er með opið Premía kort í ársbyrjun og hefur greitt fullt árgjald kortsins vegna síðasta árs, Vildarpunktagjöf, 50.000 vildarpunkta sem lagðir eru inn á Icelandair Saga Club reikning korthafa.
2) Gildir fyrir korthafa og einn gest. Til að virkja afsláttinn þarf að ganga frá greiðslu með Premía kortinu við Viking Heliskiing í síma 618 2222 eða á staðnum.
Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.
Nú getur þú geymt kvittanirnar á öruggan hátt og hengt viðhengi og/eða skýringu við allar kreditkortafærslurnar þínar í appinu.
Þegar þú verslar á netinu og þörf er á staðfestingu greiðslu færðu tilkynningu frá Arion appinu sem leiðir þig á staðfestingarskjá greiðslunnar.
Við höfum uppfært tilkynningarnar sem við sendum úr Arion appinu þegar þú greiðir fyrir vöru eða þjónustu með kortinu þínu.
Að ýmsu þarf að huga fyrir fríið. Hér eru nokkur góð ráð til þeirra sem eru á ferð og flugi.
Nokkur ráð sem gott er að hafa í huga þegar verslað er á netinu.
Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Við svörum líka utan almenns opnunartíma.
Korthafar Arion eru með ferðatryggingar hjá Verði og eru þær innifaldar í árgjaldi kreditkortsins. Tryggingarnar geta verið mismunandi eftir því hvaða kort þú ert með og hvetjum við þig til að kynna þér þær vel.
SOS International sinnir neyðarþjónustu við korthafa allan sólarhringinn. Það sem fellur hér undir er almenn læknishjálp, sjúkraflutningar, tímabundin fyrirgreiðsla vegna greiðslu sjúkrakostnaðar og ráðgjöf.
Premíu kortinu fylgja okkar bestu ferðatryggingar og ýmis önnur ferðatengd fríðindi, s.s. aðgangur að Saga Lounge, flýtiinnritun á Keflavíkurflugvelli þegar flogið er með Icelandair.
Auk þess færðu fría heimsókn í hverjum mánuði í Betri stofu World Class ásamt gesti.
Einnig er afsláttur af mat og drykk hjá Edition, golftrygging Varðar, þyrluskíðaferðir hjá Viking Heliskiing o.m.fl.