Fasteignalán
Fasteignalán henta meðal annars þeim sem eru að kaupa ósamþykkt íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði eða sumarhús. Þau geta einnig hentað þegar ekki er hægt að taka íbúðalán með veði í viðkomandi eign.

Fasteignalán henta meðal annars þeim sem eru að kaupa ósamþykkt íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði eða sumarhús. Þau geta einnig hentað þegar ekki er hægt að taka íbúðalán með veði í viðkomandi eign.

Fasteignalán er lán veitt með veði í fasteign ef umsóknin eða veðið uppfyllir ekki kröfur íbúðalána. Hámarkslánstími er 15 til 30 ár og fer eftir veðtegund.
Hámarksveðhlutfall getur verið allt að 80% af markaðsvirði eignar. Hámarksveðhlutfall fer eftir tegund húsnæðis sem er verið að fjármagna.
Ef sótt er um fasteignalán umfram 70 m.kr. þá er hámarksveðhlutfall 70%, nema í tilfelli ósamþykktra íbúða en þá er hámarksveðhlutfall 60%.
Miðað er við kauptilboð við nýkaup en fasteignamat við endurfjármögnun.
Þú getur sótt um með því að senda póst á ibudalan@arionbanki.is eða bókað tíma í íbúðalánaráðgjöf.
Lánið er óverðtryggt og ber breytilega vexti sem taka mið af veðhlutfalli.
Ekkert uppgreiðslugjald er á láninu.
Lánið er veitt gegn veði í fasteign á Íslandi.
Lántökugjald og önnur gjöld eru samkvæmt verðskrá bankans.
kr.
kr.
ár
—
Dæmið gerir ráð fyrir að vextir og kostnaður samkvæmt verðskrá haldist óbreytt út lánstímann. Breytingar á vöxtum eða kostnaði geta leitt til hækkunar eða lækkunar á heildarfjárhæð sem þarf að greiða.
| Lánsupphæð | 40.000.000 kr. |
| Vextir | 12,35% |
| Lánstími | 30 ár |
| Uppgreiðslugjald | Nei |
| Árleg hlutfallstala kostnaðar | 0,00% |
| Heildarkostnaður | 0 kr. |
| Andvirði skuldabréfs | 0 kr. |
| Heildarendurgreiðsla | 0 kr. |
| Lántökugjald | 64.995 kr. |
| Þinglýsingargjald | 4.995 kr. |
| Greiðslugjald per gjalddaga | 130 kr. |
| Umsýslugjald | 9.995 kr. |

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára. Því er mikilvægt að skilja hvernig val á lánstíma og tegund lána getur breytt bæði greiðslubyrði og heildarkostnaði. Hvort lánið er verðtryggð eða óverðtryggð, og hversu langur lánstíminn er, getur haft veruleg áhrif á greiðslubyrði og eignarmyndun.

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.
Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.

Það er erfitt að segja til um hvort það henti þér að leigja eða kaupa og þar ráða helst ferðinni þín fjárhagsstaða og þín fjárhagslegu markmið. Þú skalt reikna hvoru tveggja til enda áður en þú tekur ákvörðun. Ef stefnan er tekin á fasteignakaup eru nokkur mikilvæg atriði sem gott er að kynna sér og hafa á hreinu áður en af stað er farið.