Öflugar ferðatryggingar og aukin fríðindi fyrir stjórnendur

Kort sem hentar stjórnendum og öðrum lykilstarfsmönnum sem ferðast reglulega á vegum fyrirtækisins og vilja njóta öflugra ferðatrygginga og aukinna fríðinda í ferðalögum.

Priority Pass aðgangur
Korthafar geta óskað eftir stafrænum Priority Pass aðgangi sem veitir aðgang að yfir 1.300 betri setustofum á flugvöllum í meira en 600 borgum um heim allan. Greitt er fyrir aðgang í hverri heimsókn og korthafar geta boðið gestum með sér gegn gjaldi, samkvæmt verðskrá. Athugið að Priority Pass gildir ekki á Saga Lounge í Keflavík.

Möguleiki á vildarpunktasöfnun
Hægt er að bæta við vildarpunktasöfnun Icelandair gegn hærra ársgjaldi. Þá safnast vildarpunktar fyrir innlenda veltu kortsins samkvæmt skilmálum Icelandair. Þá safnast 8 Vildarpunktar fyrir hverjar 1.000

Veltutengdur afsláttur af árgjaldi korts:
  • 50% afsláttur af árgjaldi ef ársvelta er yfir 4.000.000 kr.

  • 100% afsláttur af árgjaldi ef ársvelta er yfir 7.600.000 kr.

Ferða- tryggingar
Fæst fyrirframgreitt
Nei
Árgjald
Vildarpunktar
24.700kr
Vildarpunktar per 1000 kr.
8

Lausnir

Lykilnotendur stýra ferðinni

Við bjóðum fyrirtækjum að skrá valið starfsfólk sem lykilnotendur en þessir einstaklingar fá þá auknar heimildir til að stýra fjármálunum fyrirtækisins í netbankanum.

Varnir gegn kortasvikum

Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.

Endurkröfur kortafærslna

Ef það kemur færsla á kortið þitt sem þú telur af einhverjum ástæðum ekki eiga rétt á sér getur þú mögulega átt rétt á endurkröfu samkvæmt endurkröfureglum kortasamtaka.

Kortatilkynningar úr Arion appinu

Við höfum uppfært tilkynningarnar sem við sendum úr Arion appinu þegar þú greiðir fyrir vöru eða þjónustu með kortinu þínu.

Kortakvittanir beint til bókarans

Í Arion appinu er einfalt að hengja greiðslukvittun og skýringu við kortafærslurnar. Um leið og korthafi hefur hengt kvittun eða skýringu við kortafærsluna verða upplýsingarnar aðgengilegar í netbankanum.

Tryggingar og neyðar­aðstoð

Vörumst netsvik saman

Ef þú telur þig hafa orðið fyrir netsvikum skaltu tafarlaust hafa samband við okkur í síma 444 7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið netsvik@arionbanki.is. Við svörum líka utan almenns opnunartíma.

Ferðatryggingar Varðar

Korthafar Arion eru með ferðatryggingar hjá Verði og eru þær innifaldar í árgjaldi kreditkortsins. Tryggingarnar geta verið mismunandi eftir því hvaða kort þú ert með og hvetjum við þig til að kynna þér þær vel.

SOS International

+45 38488210

SOS International sinnir neyðarþjónustu við korthafa allan sólarhringinn. Það sem fellur hér undir er almenn læknishjálp, sjúkraflutningar, tímabundin fyrirgreiðsla vegna greiðslu sjúkrakostnaðar og ráðgjöf.

Spurt og svarað

Hér getur þú fundið svör við algengum spurningum er varða notkun og öryggi í kortaviðskiptum.