Léttu þér mánaðamótin

Kynntu þér þá kosti sem eru í boði í Arion appinu. 
Ef þú ert ekki með Arion appið geturðu sótt það hér.

Sækja fyrir iOSSækja fyrir Android

 

Yfirdráttarlán
á debetkortareikningi

Yfirdráttarlán hentar vel þeim sem þurfa fremur lága upphæð í stuttan tíma. Lánið er afgreitt með skömmum fyrirvara og veitt til allt að 12 mánaða í senn. Lánið ber ekki eiginlegar afborganir svo þú getur hagað endurgreiðslu eftir þínum þörfum.

Möguleg upphæð lánsins er metin út frá tekjum og greiðslugetu hvers viðskiptavinar fyrir sig. Lán lægra en 2.350.000 er afgreitt í netbanka Arion banka. Ef lánið er hærra en 2.450.000 þarf að framkvæma greiðslumat.*

Yfirdráttarlán bjóðast fjárráða viðskiptavinum, 18 ára og eldri, uppfylli þeir kröfur bankans.

Gott að vita

  • Ekkert lántöku-, stimpil- eða uppgreiðslugjald.
  • Þú greiðir bara vexti af þeirri upphæð sem þú nýtir hverju sinni.**
  • Þú getur sótt um lánið í netbanka Arion banka. Þú færð skilaboð send í netbankann um leið og búið er að afgreiða umsóknina. 

*Einnig i þeim tilfellum sem bankinn óskar þess samkvæmt útlánareglum eða af öðrum ástæðum. Kostnaður við greiðslumat er samkvæmt verðskrá
**Vextir eru greiddir samkvæmt útlánsvöxtum viðkomandi debetreiknings.