Útgreiðslur lífeyrissparnaðar

- hvað ber að hafa í huga?

 

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar. Því leggjum við hjá Arion sérstaka áherslu á faglega og persónulega útgreiðsluráðgjöf.

Í samstarfi við lífeyrissjóði í rekstri bankans bjóðum við þér að koma á opinn fræðslufund um útgreiðslur þar sem fjallað verður m.a. um útgreiðslureglur, skattalega meðferð og samspil útgreiðslna við greiðslur frá Tryggingastofnun.

Fræðslufundurinn verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion, Borgartúni 19. Einnig í streymi á Facebook síðu Arion banka og Frjálsa lífeyrissjóðsins. 

Boðið verður upp á léttar veitingar en áætlað er að fundurinn taki rúma klukkustund.

Allir velkomnir.

Skráningu er lokið.