Kosningar um samþykktarbreytingar – athugið fyrri kosning ógild
Á ársfundi EFÍA sem haldinn var þann 6. maí sl. lagði stjórn sjóðsins fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Um var að ræða tillögur um breytingar á makalífeyri og breytingar á barnalífeyri, auk annarra breytinga. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla sjóðfélaga um samþykktarbreytingar. Opnað var fyrir kosningu 10. júní sl. en vegna formgalla þurfti að ógilda þær kosningar og opna fyrir nýjar. Þeir sem þegar hafa greitt atkvæði þurfa því að gera það að nýju með nýjum kosningakóða. Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum.
Sjóðfélögum mun berast tölvupóstur með slóð inn á kosningavef um samþykktarbreytingar. Póstlögð hafa verið bréf til þeirra sem ekki eru með skráð netfang hjá sjóðnum, með kosningakóða ásamt upplýsingum um vefslóð kosninganna.
Ný atkvæðagreiðsla hefst kl. 14.00 þann 16. júní og lýkur kl. 14.00 þann 30. júní.
Nánari upplýsingar um samþykktarbreytingarnar sem kosið er um og rökstuðning fyrir þeim má nálgast í viðhengi hér að neðan. Sjá einnig hér frétt um kynningarfund um samþykktarbreytingarnar sem haldinn var 1. júní sl.
Greitt er atkvæði um einstaka kafla tillagnanna, þ.e. breytingar á makalífeyri, breytingar á barnalífeyri og aðrar breytingar. Tillögur varðandi makalífeyri snúa að framtíðarréttindum vegna iðgjalda sem greidd verða í sjóðinn frá og með næstu áramótum en öll áunnin réttindi samkvæmt núgildandi samþykktum haldast óbreytt. Í tillögum um barnalífeyri er gert ráð fyrir að nýir úrskurðir frá næstu áramótum taki mið af breyttum samþykktum en engin breyting verði á eldri úrskurðum.
Vakin er athygli á villu í gögnum sem lögð voru fram með kynningu á tillögum stjórnar. Fram kom að ákvæði um skilyrði til framreiknings á örorkulífeyri myndi falla á brott í gr. 12.1. Hið rétta er að lagt er til að ákvæðið færist til og verði í 1. mgr. gr. 12.2. með lítilllega breyttu orðalagi. Auk þess verða fjárhæðir uppfærðar samkvæmt vísitölu í samræmi við aðrar breytingatillögur.
Ekki er um efnislega breytingu að ræða heldur eingöngu verið að skilja með skýrum hætti á milli réttinda til örorkulífeyris vegna áunninna réttinda skv. gr. 12.1. og réttinda til örorkulífeyris vegna framreiknaðra réttinda skv. gr. 12.2.
Í gr. 12.7. féll niður auðkenning á hluta setningar, sem lagt er til að falli niður.
Þessi atriði eru bæði leiðrétt í viðhengi með fréttinni hér að neðan.
Ef einhverjar spurningar vakna eða ef tölvupóstur eða bréf með kosningakóða og hlekk á vefslóð kosninganna berst ekki sjóðfélaga, er sá hinn sami hvattur til að hafa samband við Svein G. Þórhallsson hjá Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7721, eða hafa samband í þjónustusíma sjóðfélaga 444 8960 eða senda póst á efia@arionbanki.is. Stjórn sjóðsins veitir einnig fúslega upplýsingar.