Niðurstöður kosninga

Niðurstöður kosninga

Á ársfundi EFÍA sem haldinn var þann 6. maí sl. lagði stjórn sjóðsins fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Um var að ræða tillögur um breytingar á makalífeyri og breytingar á barnalífeyri, auk annarra breytinga. Samkvæmt samþykktum sjóðsins fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla sjóðfélaga um samþykktarbreytingar.

EFÍA naut liðsinnis FÍA við framkvæmd kosninganna og fékk afnot af kosningavef félagsins. Sjóðfélagar fengu því sendan tölvupóst með upplýsingum um kosningarnar og gátu kosið rafrænt. Jafnframt var boðað til kynningarfundar um efni samþykktarbreytinganna. Þeir sjóðfélagar sem ekki voru með skráð netföng hjá FÍA fengu upplýsingar og aðgengi að kosningavef sent með bréfpósti.

Greidd voru atkvæði um einstaka kafla tillagnanna, þ.e. breytingar á makalífeyri, breytingar á barnalífeyri og aðrar breytingar.

Kosningu lauk kl 14:00 29. júní 2015. Kosningaþáttaka var 19,1% og verður að viðurkennast að stjórn sjóðsins vonaðist eftir mun betri þáttöku en raunin varð. Atkvæði féllu með eftirfarandi hætti:

  • Breytingar á makalífeyri voru felldar með 59,1% greiddra atkvæða, 37,4% greiddu atkvæði með tillögunni en 3,5% sátu hjá.
  • Breytingar á barnalífeyri voru samþykktar með 52,6% greiddum atkvæðum, 42,1% höfnuðu tillögunni og 5,3% sátu hjá.
  • Aðrar breytingar voru samþykktar með 57,9% greiddum atkvæðum, 33,3% höfnuðu tillögunni og 8,8% sátu hjá.

Breytingar þær sem samþykktar voru taka gildi um áramótin. Í tillögum um barnalífeyri er gert ráð fyrir að nýir úrskurðir frá næstu áramótum taki mið af breyttum samþykktum en engin breyting verði á eldri úrskurðum. Breytt fyrirkomulag á barnalífeyri mun að öðru óbreyttu auka ellilífeyrisréttindi um allt að 2% eftir aldri sjóðfélaga. Aðrar breytingar sem samþykktar voru hafa ekki áhrif á lífeyrisréttindi sjóðfélaga, þar er almennt um að ræða breytingar til lagfæringa og samræmingu á orðalagi.

Ítarlegar upplýsingar um efni samþykktabreytingarnar sem kosið var um má nálgast hér.