Sjóðfélagafundur EFÍA þriðjudaginn 8. febrúar kl. 12:00

Sjóðfélagafundur EFÍA þriðjudaginn 8. febrúar kl. 12:00

Þriðjudaginn 8. febrúar kl. 12:00 fer fram sjóðfélagafundur EFÍA en þar er um að ræða árlegan upplýsingafund fyrir sjóðfélaga þar sem farið er yfir ávöxtun og þróun síðasta árs. Fundurinn verður haldinn í sal FÍA að Hlíðasmára 8.

Á fundinum verður farið yfir nýliðið ár, þróun markaða og ávöxtun sjóðsins árið 2021 ásamt umfjöllun um það hvernig árið 2022 fer af stað. Sérstök yfirferð verður einnig yfir útgreiðslur lífeyrissparnaðar og þjónustu við sjóðfélaga. Þá verður að sjálfsögðu opið fyrir spurningar og umræður.