Málefni ÍL sjóðs

Málefni ÍL sjóðs

EFÍA er einn af eigendum að skuldabréfum með ríkisábyrgð sem Íbúðalánasjóður hóf útgáfu á árið 2004 en skuldabréfin eru að mestu í eigu lífeyrissjóða og verðbréfasjóða. Stjórnvöld hafa nú lýst því yfir að þau hyggist leita samninga við eigendur þessara bréfa um uppgjör þeirra þar sem fjárhagsstaða ÍL-sjóðs er slæm.

Hlutfall HFF bréfa útgefnum af ÍL-sjóð er u.þ.b. 9,6% af heildareignum EFÍA. Yfirlýsing stjórnvalda hefur í för með sér að óvissa er um uppgjör framangreindra skuldabréfa. EFÍA hefur því, í varúðarskyni, fært niður virði þeirra í bókum sínum mv. núverandi ávöxtunarkröfu sem svarar til uppgreiðslu á kröfuvirði. Það er mikilvægt að halda því rækilega til haga að þó svo að EFÍA framkvæmi varúðarniðurfærslu í takt við eðlilega viðskiptahætti og varúðarsjónarmið er sjóðurinn á engan hátt að fallast á kröfur stjórnvalda um niðurfærslu krafna sinna á hendur ÍL-sjóði. EFÍA mun gæta hagsmuna sjóðfélaga til hins ítrasta.

Flestir lífeyrissjóðir landsins hafa, í ljósi mikilla hagsmuna íslenskra sjóðfélaga, myndað sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs, EFÍA er hluti af þeim hópi. Telja forsvarsmenn sjóðanna rétt að vinna saman í greiningu á stöðu sjóðanna vegna þessa. Hver og einn sjóður mun að endingu taka sjálfstæða ákvörðun um málið.

Þetta kom fram á fjölmennum upplýsingafundi sem flestir lífeyrissjóðir landsins mættu til í dag. Eins og fram hefur komið hefur fjármálaráðherra lýst yfir að ríkið ætli að grípa til aðgerða vegna stöðu sjóðsins og að þrír kostir væru fyrir hendi. Í fyrsta lagi að halda áfram að leggja ÍL-sjóðnum til fjármuni, sem fjármálaráðherra telur ekki koma til greina. Í öðru lagi að knýja sjóðinn í gjaldþrot með sérstakri lagasetningu, til að losna undan ríkisábyrgð. Í þriðja lagi að ná samkomulagi við skuldabréfaeigendur, sem að stærstum hluta eru lífeyrissjóðir, um uppgjör.

Á fundinum í dag kom fram að einhugur væri um samstarf vegna greiningu stöðunnar vegna þessa máls, enda gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir íslenska sjóðfélaga. Þegar hefur verið gengið frá ráðningu lögfræðistofunnar Logos sem lögfræðilegs ráðgjafa lífeyrissjóðanna, unnið er að því að greina lögfræðileg álitamál, hagsmuni sjóðanna – og þar með almennings í landinu – og frekari framgangi málsins. Þá hafa fjárhagslegir ráðgjafar jafnframt verið ráðnir.