04. apríl 2023
Ársfundur EFÍA 2023
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn þriðjudaginn 9. maí kl. 12:00 í Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Dagskrá fundarins fer eftir samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Allir sjóðfélagar eiga rétt á fundarsetu með umræðu- og tillögurétti.
Dagskrá, fundargögn og upplýsingar um framboð til stjórnar verða birt þegar nær dregur.
Tillögur til ályktunar um önnur mál, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.